16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í C-deild Alþingistíðinda. (949)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Forseti [M. A.]:
Þetta frumvarp verður rætt í 5 köflum. Fyrst 1.–6. gr., tekjukaflinn, svo 7.–12. gr., svo 13. gr., svo 14. og 15. gr., og svo verður í síðasta kafla tekið það, sem þá er eftir. Nú verður því til umræður tekjukaflinn, 1.–6. gr. frumv., með þeim breyt.till., sem fram eru komnar, og að eins eru frá fjárlaganefndinni.