16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í C-deild Alþingistíðinda. (950)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Framsögum. [Pétur Jónsson]:

Eg ætla að gera hér almenna yfirlýsingu, ekki að eins um þennan kafla, tekjukaflann, heldur um tillögur fjármálanefndarinnar yfir höfuð. Hún er sú, að eg hefi hugsað mér að ræða ekki hvern einstakan lið í nefndarálitinu og breytingartill. fyrir sig, heldur skírskota til nefndarálitsins. Hitt, að vera að tala um hvern lið fyrir sig, álít eg tvíverknað og óþarfa eyðslu á þingtímanum. En ef menn óska skýringar á einhverju atriði, er sjálfsagt að gera þar nánari grein. Þetta vildi eg sagt hafa fyrirfram um frammistöðu mína sem framsögumanns fjárlaganefndarinnar.

Við þennan kafla, tekjukafiann, hefi eg ekkert að segja, nema breyt.till. undir tölul. 6, breyt.till. nefndarinnar. Sú tillaga kom inn eftir að nefndarálitið var fullsamið. Þar stendur í síðari málsgrein: Af láni Barðastrandarsýslu frá 22. Júní 1897 úr viðlagasjóði, veitist uppgjöf á 625 kr. Þetta lán er gamalt lán, sem Barðastrandarsýslu var veitt til vegabóta. Af því láni eru nú 1250 kr. eftir. Þess hefir verið farið á leit að fjárlaganefndina, af þingm. Barðstrendinga, að þingið veitti uppgjöf á öllu láninu. Nefndin er nú yfirleitt fremur á móti því, að lán séu uppgefin, en um þetta lán er þó dálítið öðru máli að gegna. Barðastrandarsýsla hefir það ég til veit aldrei fengið neinn styrk úr landssjóði til sýsluvega, eins og margar aðrar sýslur hafa fengið. Enginn þjóðvegur er í sýslunni nema yfir lítinn hluta austan til og nálega allar vegagerðir verða Barðstrendingar sjálfir að kosta. Nefndin vildi því rétta þeim hjálparhönd í þessu og létta undir með þeim með því að veita þeim uppgjöf á nokkru af láninu.

Mér hefir verið bent á, viðvíkjandi athugasemdinni um árgjaldið af Breiðabólstaðarprestakalli, að það væri 3 prestaköll, sem kend væru við Breiðabólstað, og þetta er rétt. Þótt nú ekki sé nema eitt af þessum prestaköllum, sem árgjald er goldið af, þá vil eg samt lýsa yfir því, að hér er átt við Breiðabólsstað í Fljótshlíð.

Um tekjuhækkun nefndarinnar vil eg geta þess, að nefndin er stjórninni sammála í því að orða varlega áætlun. En nefndin heldur því fram, að áætlun hennar sé alls ekkí óvarleg.

Skal eg svo ekki orðlengja þetta meir.