16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í C-deild Alþingistíðinda. (955)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Magnús Kristjánsson:

Eg skal fullkomlega játa, að varlega verður að fara í að auka útgjöldin, ef ekkert er gert til þess, að auka tekjurnar, enda hefi eg ekki ætlað mér að koma fram með breytingartillögur fyrir kjördæmi mitt, sem miða til þess að auka útgjöld landssjóðs. Samt sem áður verð eg að mæla eindregið með tillögunni á þgskj. 350 um styrk til eftirlits úr landi með fiskiveiðum útlendinga. Sjávarútvegsnefndinni hafa borist tilmæli um, að fara fram á slíka fjárveitingu, því að eftir að árangurinn af þeim tilraunum, sem gerðar hafa verið hér sunnanlands, hefir orðið kunnur, hefir vaknað áhugi manna víðsvegar um land á því, að gera eitthvað í þessa átt.

Mín sannfæring er sú, að þetta sé heppilegur vegur til að bæta eitthvað úr þeim vandræðum, sem stafa af ólöglegum fiskiveiðum útlendinga hér við land. Þetta ber heldur ekki að skoða sem beinan styrk til sjávarútvegsins, því að einmitt þetta aukna eftirlit er einkum nauðsynlegt til þess, að einhver viðleitni sjáist í þá átt, að reynt sé eftir megni að koma í veg fyrir, að landsins lög og réttur innlendra manna sé fótum troðinn af þessum útlendu yfirgangsseggjum. Eg er fullviss um, að þó að 3000 til 4000 kr. væri varið í þessu skyni fyrir Norðurlandi úti fyrir Eyjafirði og Siglufirði, þá mundi sú upphæð fást fullkomlega aftur sem sektarfé fyrir ólöglegar veiðar útlendinga, sem annara tapast fyrir ónógt eftirlit. Það hagar svo til á þessu svæði, að ef til væri bátur, sem hefði þetta; eftirlit, þá væri í mörgum tilfellum hægt að sekta lögbrjótana. Það .er annað með útlendu botnvörpungana, því að þó að hægt sé að taka númer þeirra, þá er engin trygging fyrir því, að þeir verði hundsamaðir. Síldveiðaskipin eru aftur á móti neydd til að koma inn á hafnir nærri daga daglega, og þegar þau hafa verið staðin að ólöglegum veiðum, er ekkert hægara en koma ábyrgð á hendur þeim sem þar eiga hlut að máli.

Heyrt hefi eg, að þegar sé vaknaður svo mikill áhugi á þessu máli á Norðurlandi, að þar sé í smiðum skip í þessu skyni. Eg tel víst, að einstakir menn muni leggja fram fé til þess, en við því er ekki að búast, að þeir koati það að öllu leyti, því að kostnaðurinn verður eflaust talsvert mikill. Það verður óhjákvæmilegt að hafa tvo lærða menn, sem eru færir um að gera þær mælingar og þá útreikninga, sem til þess þarf að vita með vissu, hvort skip eru að ólöglegum veiðum eða ekki. Eg býst við, að kostnaðurinn verði ekki minni en 6 þús. kr., ef skipinu er haldið úti í tvo mánuði. Mér hefir dottið í hug, að landið legði fram helminginn af þessum kostnaði, á móti því, að það taki sektarféð eins og það væri. Eg veit ekki eins vel, hvernig til hagar á Austurlandi og Vesturlandi og skal ekki fara út í það, enda eiga aðrir menn sæti hér í deildinni sem því eru kunnugri.. Eg þykist þó viss um, að þar gæti þetta einnig komið að talsverðum notum, þó að það yrði ekki til þess að auka eina tekjurnar.

Það hagar svo sérstaklega til fyrir Norðurlandi, ef útlendir veiðimem haga sér þá eins hér eftir og hingað til. Strandvarnarskipið eitt er alveg ónógt til eftirlits á jafn-stóru svæði, frá Langanesi til Hornstranda. Það er til of mikils ætlast, að það geti verið alstaðar á sama tíma. Og þó að Valurinn fái skip til aðstoðar í ár, verður strandvarnarskipið ekki nema eitt fyrir það, ef Valurinn þarf að fara til Grænlands eins og að undanförnu.

Ef 3000 kr. á ári verða veittar á þessu fjárhagstímabili til þess að halda uppi slíku eftirliti norðanlands, er eg í engum vafa um að útvegsmenn á Norðurlandi mundu leggja annað eins á móti. Eg skal svo ekki fjölyrða frekara um málið, en bið einungis átekta, hvernig þessari breytingartillögu verður tekið.