16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í C-deild Alþingistíðinda. (965)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Matthías Ólafsson:
Það var um breyt.till. á þgskj. 391 sem eg vildi segja nokkur orð. Háttv. framsögum. fjárlaganefndarinnar sagði, að sektir fyrir ólöglega veiði í landhelgi kæmu ekki landssjóði að gagni. Þetta er alveg rétt. Landssjóður á ekki að ætlast til þess að fá endurgoldið beinlínis alt sem hann lætur úti. Hann á ekki að ætlast til að fá dal í hvert skifti sem hann lætur eyrir úti. Því sem landssjóður lætur úti, á að verja til þess að hagur þjóðarinnar batni.
Landhelgissjóðurinn á að standa óhaggaður þangað til hann er orðinn nógu mikill til þess að kaupa fyrir hann varðskip.
Háttv. framsögum. (P. J.) sagði, að þau héruð, sem gagn hefði af þessu bátaeftirliti, mundu kosta það sjálf. Þetta er mjög erfitt. Héröðin eru oft fátæk og þeim mikil vorkunn þótt þau biðji um styrk.
Eg heyrði að háttv. þm. Sfjk. (V. G.) sagði, að ekki væri víst að öll upphæðin yrði notuð, þótt hún yrði veitt. Eg vildi óska að hún yrði samþykt öll, 10,000 kr., og líka að hún yrði notuð öll.