16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í C-deild Alþingistíðinda. (966)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Valtýr Guðmundsson:
Eg skal ekki halda langa ræðu, eg vildi að eins geta þess út af því sem háttv. 1. þm. Rvk. (L.H.B.) sagði, um að breyt.till. sjávarútvegsnefndarinnar Væri aðgengilegri ef í henni stæði: »alt að 10.000 kr.«, að mér er óskiljanlegt, á hvern hátt það bætti tillöguna. Féð yrði ekki notað nema jafn mikið kæmi frá öðrum stöðum, það er tekið fram í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar. Og svo þó að stæði »alt að«, þá mundi stjórnin nota féð ef nauðsyn væri á, en nauðsynin væri strax og styrks væri leitað, eins og eg hefi áður sýnt fram á. Munurinn er því enginn. Annars er nefndinni ekkert áhugamál að hafa styrkinn endilega 10.000 kr. Hún gæti vel fært hann niður í 8000 kr., þó að eg líti nú svo á, að þessi styrkur, sem farið er fram á, sé ekki of hár. Einkanlega af því að hér er verið að styrkja stærsta atvinnuveg landsins og þann sem mjólkar landasjóði bezt.