18.08.1913
Neðri deild: 37. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í C-deild Alþingistíðinda. (994)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Bjarni Jónsson:
Eg hafði hugsað; að háttv. framsögum. (P. J.) talaði lengra og ítarlegra, og er eg því vanbúinn við tilmælum hans um, að tala fátt um greinarnar eða tillögur fjárlaganefndarinnar yfir höfuð. Eg get tæplega trúað því, að háttv. framstigum: eða, nokkur annar þm. komi svo undirbúinn undir umræðurnar; að hann hafi gerhugsað hvert einasta atriði, eða með svo ákveðnum hug, að hann geti ekki breytt skoðun sinni í einhverju. Það er til nokkuð mikils mælst af háttv. framsögum., að hafa stuttar umræður, einkanlega þar sem hann hefir sjálfur óskað eftir athugasemdum við gerðir fjárlaganefndarinnar. Enda efast eg ekki um, að háttv.. framsögum. hefði gott af að heyra aðrar skoðanir heldur en skoðanir þeirra manna, sem hann hefir átt kost á að tala við síðustu dagana.
Eg hefi minst á það, hvað rangleg aðferð það er í fjárveitingum, að láta unglingaskólana í kaupstöðum hafa meira fé, heldur en sams konar skóla til sveita. Í kaupstöðunum, þar sem hver maður gengur heiman að frá sér í skólann, þurfa menn ekki að ráða sig í matvist annarstaðar, heldur hafa menn þar fæði og alla aðhlynningu heima hjá sér. En um þetta er alt öðru máli að gegna í sveitunum, þar geta menn ekki gengið heiman og heim í hvaða veðri sem er. Þess vegna verða menn þar að kaupa sér fullkomna matvist og þjónustu annarstaðar. Það ætti ekki að vera gert örðugra fyrir sveitamenn að afla sér dálítillar mentunar, heldur en fyrir kaupstaðarbúa. Landssjóðsstyrkurinn á sjáifsagt að vera til þess að jafna kjör landsmanna, og sveitabúum er ekki síður nauðsyn á að fá mentun heldur en kaupstaðarbúum. Þetta er auðskilið og það hljóta allir að sjá, og tillaga mín byggist á þessu. Eg vil taka í burtu sérstakar fjárveitingar til skólanna á Seyðisfirði, Ísafirði og Hvítárbakka, en veita eina fjárhæð til unglingaskóla yfir höfuð, sem skiftist þannig milli skólanna, að skólar í kaupstöðum fengju 600–700 kr., en hinir þar á móti 1200–1500 kr. Eg býst við, að allir geti orðið sammála um þetta, og eg vil segja fjárlaganefndinni það, og þeim öðrum sem vilja skera við nögl styrk til þeirra manna, sem nema listir, að þeir ættu að ganga inn á að lækka styrk til þeirra skóla, sem ekki þurfa á styrk að halda. Um Hvítárbakkaskólann vil eg segja nokkur orð sérstaklega. Það kom fram í ræðu háttv. frams.m., að þann skóla bæri ekki að telja til unglingaskóla. Hann er þá víst einhver æðri mentastofnun, og forstöðumaður hans á þá víst að vera færari til starfsins heldur en forstöðumenn hinna skólanna. Eg þekki forstöðumenn þessara skóla á ýmsum stöðum, og veit að þeir þeir eru lærðir menn, sem að engu leyti standa að baki þessum manni, nema fremri séu. Eg fékk því til leiðar komið á þingi 1911, að þessi skóli væri settur undir sams konar eftirlit og aðrir unglingaskólar. Nú vil eg spyrja stjórnina; hvers konar eftirlit hefir verið haft með þeim skóla. Eg hefi spurst fyrir um það, og komist að þeirri niðurstöðu, að með honum hafi ekki verið haft neitt eftirlit fremur en fyr. En það er of mikið færst í fang, að halda því fram í alvöru, að hann sé önnur tegund skóla heldur en unglingaskólar yfir höfuð. Hann er að engu leyti fremri öðrum unglingaskólum, nema síður sé. Eg hefi lesið skólaskýrslur frá honum og öðrum skólum, og hefi ekki betur vit á, en að fyrirkomulag annara slíkra skóla sé betra, hollara og hagkvæmara heldur en þar. Eg vil taka það fram, að eg segi þetta ekki af því, að eg vilji þessum skóla eða formstöðumanni illa, heldur vil eg að eins að sá styrkur, sem skólanum er veittur, komi að gagni. Undanfarið hefir verið veitt til þessa skóla meira af kappi en forsjá, og þegar spurt hefir verið, hvera vegna, þá hefir orðið steinhljóð, því að það var aldrei nein ástæða til að styrkja hann. En svo að menn misskilji nú ekki tillögu mína, þá skal eg taka það fram, að eg ætlast ekki til að styrkur sé tekinn af skólanum. Það sem eg vildi hafa lagt áherzlu á með minni ræðu, er það, að þeim skilyrðum, sem sett eru í lögum fyrir styrkveitingunni, á að fullnægja. En þessi skilyrði eru til athlægis í fjárlögunum, ef þeim er ekki fullnægt, og fyrst að þau eru framkvæmd á sumum skólunum, þá eiga þau að vera framkvæmd á þeim öllum.
Þá skal eg minnast nokkuð á 15. gr., en eg er ekki viss um, að eg geti orðið við tilmælum háttv: framsögum. um að vera fjarska stuttorður, en eg skal reyna að takmarka mig alt hvað eg get. Mér verður þá fyrst fyrir að minnast á það ofsahatur, sem kemur svo alment fram hjá kjósendum, þingmönnum og öðrum, gegn þeim hlut, sem kallaður er bitlingar. Hvað er svo þetta, sem menn nefna bitlinga? Bitlinga nefna menn þá fjárstyrki, sem veittir eru einstökum mönnum til þess að halda áfram störfum, sem eru nauðsynleg fyrir landið. Eg skal nefna eitt dæmi, sem mér er vel kunnugt, og þó að það sé bróðir minn, sem þar á hlut að máli, þá skal eg taka hann til dæmis upp á þessa menn. Þegar við bræðurnir vorum unglingar í skóla, þá fórum við ætíð í frístundum okkar upp um fjöll og heiðar og út um eyjar til að safna grösum og jurtum. Hugur Helga bróður míns hneigðist snemma að grasafræðinni, og hann vildi vinna það til, að leggja út í einsýnan sult til þess að geta stundað þessa fræðigrein. Hann hefir verið duglegur starfamaður frá því fyrsta, sívinnandi að þessum áhugamálum sínum, en jafnan haft lítil laun starfa sinna.
Fjárlaganefndin hefir nú lagt til að lækka þann styrk, sem hann hefir undanfarið haft, og skal eg koma að því atriði síðar. Hann hefir lagt út í þetta af áhuga, jafnvel þótt hann sæi fyrir fram, að það gat ekki orðið lífvænlegt hér á landi. Hefði hann orðið prestur eða bóndi, þá hefði hann sjálfsagt getað álnast, engu síður en aðrir menn í þeim stöðum.
Þannig er þetta um alla okkar listamenn og vísindamenn. Hvernig geta þeir gert sér vonir um að álnast eða efnast af sinni ment hér á Íslandi? Nei, þeir verða að gera sér að góðu að fá vanþakklæti og eftirtölur að launum fyrir starfa sinn. Þessir áhugamenn sem vilja fórna lífi sínu til að fylla þau skörð, sem auð standa, fá það eitt fyrir, að þeir eru kallaðir betlarar. En hvað gerir svo — þingið ? Þingmönnum varð ekki ilt af því í fyrra að hækka sitt eigið kaup, svo að nemur mörgum slíkum styrkveitingum, sem til listamanna ganga. Þó að eg beri mikla virðingu fyrir okkur þingmönnunum og starfi okkar, þá er ekki hálft gagn að setu okkar hér á móti verki eins slíks manns. Og sízt getum við staðið okkur við að brigzla þessum mönnum um betl, þegar við erum að auka okkar eigin tekjur. En hvað segjum við svo um almenning, bændur og fólk út um land? Það kann ekki verri löst á neinum manni heldur en þann, að hann hafi einhverntíma fengið bitling. Eg veit það, að mínir kjósendur sumir hverjir bera til mín þungan hug fyrir það, að eg er hlyntur skáldum og listamönnum, og eg býst við að það sé það alvarlegasta, sem þeir hafa á móti mér
En ef við lítum nú á fjárlögin, þá sjáum við að bændur og búalið hefir líka sína bitlinga. Er ekki veittur styrkur til að búa til almennilegt smjör? (Sigurður Sigurðsson: Nei, ekki lengur). Eg ætla þó að enn þá hafi nokkrir verðlaun fyrir smjörgerð. Þeir hafa styrk til að búa til smjör og styrk til að slétta tún, en þetta kalla þeir ekki styrk til einstakra manna, heldur til búnaðarins. Það eru þó einstakir menn, sem fá sína bitlinga af þessum styrkveitingum. Það er alveg eins hægt að segja, að það sem eg er að biðja um, sé ekki styrkur til einstakra manna, heldur sé það styrkur til listarinnar eða vísindanna. Skiljanlega kemur sá styrkur niður á einstökum mönnum eins og búnaðarstyrkurinn.
Eg þykist ná hafa gert mönnum það ljóst, að þessir menn eiga einmitt skilið að fá styrk, því að þeir hafa lagt lífið í sölurnar til þess að halda uppi heiðri þjóðarinnar. Og það er svo gott að vita, að vísindamenskan kemur eins að haldi að því er snertir framleiðsluna eins og öll önnur störf. Eg skal t. d. minna á, að grasafræðin á ekki svo lítið skylt við búnað og jarðrækt. Eins og allir vita, þá er hér ekki til neinn sjóður til að styrkja vísindamenn og listamenn. Á þá alt að fara í kaldakol þess vegna, eða á sá að styrkja, sem getur það, og það er landið sjálft?
Eg hefi leyft mér að fara fram á, að Jóhannesi málara Kjarval verði veittur lítilfjörlegur styrkur annað árið til að ljúka námi sínu. Hann er framúrskarandi efnilegur maður í sinni ment, meðferð hans á litum er furðanlega góð, og má mikils af honum vænta. Hann hefir brotist áfram í fátækt, og var sjómaður á botnvörpung þangað til hann fór utan, og þarf því enginn að segja, að hann hafi ekki nent að vinna. En það getur enginn verið í listakóla og á fiskiskipi á sama tímanum. Eg ímynda mér að engum geti blandast hugur um, að rétt sé að styrkja þennan mann.
Þá sagði háttv. framsögumaður, að úr því að stúlka sú, er Kristin heitir, hafi ekki verið tekin upp, þá hafi fjárlaganefndin ekki viljað leggja til að þessum manni yrði veittur styrkur. Eg ætla ekki að fara að lasta neinn, sízt stúlkur, og ætla því ekki að fara út í neinn samanburð á þeim. En því má ekki veita þeim báðum styrk?
Eg tel enga hættu á því, að allir vilji fara að mála. Ef allir vilja fara að taka til þess, þá skal eg lofa fjárlaganefndinni, að þá skal eg ekki vera á móti henni í því efni, að taka fyrir nokkra fjárveitingu til málara. En á meðan ekki eru nema 1 og 2 eða kannske 3 menn í hverri ment, málaralist og myndhöggvara, (Sigurður Sigurðsson: Og söngmanna), sem einnig eru frábragðs hæfileikum búnir, þá finst mér ekki ofmikils til ætlast af okkur Íslendingum, að við viljum hjálpa þeim að einhverju dálitlu leyti 1. þingm. Árn. bætti söngmönnunum við. Já, það er alveg rétt, en mér kemur það ókunnuglega fyrir sjónir, að þessi bending kom úr þeirri átt. Eg held að háttv. þingmaður sé farinn að ganga í endurnýjungu lífdaganna. Veit eg það vel, að söngurinn er hér brauðlaus list, og er því háttv. þingmaður víst að vakna af einhverjum brauðadraumi. En það hygg eg, að bæði þingmanninum og öðrum Íslendingum veitti ekki af að heyra fagran söng. Goete segir:
Wo man singt, da laas dich ruhig nieder, böse Menschen haben Keine Lieder,
Á íslenzku hefi eg snúið því svo:
Seztu hvar sem söngur er í rönnum,
söngur er ei til hjá vondum mönnum.
Nei, það þrífst enginn söngur hjá illþýðinu. Söngurinn er að eina inna góðu.
Yfir höfuð eru þær hlægilegar aliar þessar umtölur um þessa styrki í 15. gr. Er undarlegt að menn skuli hafa svo á móti þeim, sem þó nema allir til samans ekki nema 20.000 krónum, ekki þriðjungurinn af þeim styrk, sem erlendu félagi er veittur til skipa, sem sigla hér með ströndum fram og draga fé frá Íslendingum. Þetta sýnir, hve litlir fjármálamenn þessir menn eru. Þeir verja mál sitt af mikilli andagift þegar þeir vilja veita styrki, sem nema mörgum tugum þúsunda, en horfa í barm sér og hrína, þegar minst er á nokkur hundruð króna styrk. Þeir eru miklir og örlátir þegar um þúsundirnar er að ræða, en þegar komið er niður í hundruðin, þá fara að renna á þær tvær grímur, því að þá fara þeir að skilja upphæðirnar.
Fjárlaganefndin hefir lagt það til, að afnuminn yrði styrkurinn til Einars Jónssonar myndhöggvara. Væri þetta mjög ilt, ef tillagan um 4000 kr. fjárveitinguna til að flytja heim verk hans, yrði feld. Ef hún yrði samþykt, væri það gott, því að þá þyrfti Einar þó ekki að mölva í sundur öll verkin sín, sem eg kalla að hann annars yrði neyddur til að gera, þegar hann hefir ekkert húsrúm fyrir þau. Og styrkurinn, sem hann hefir fengið hingað til, hefir ekki hrokkið fyrir öðru en leigunni á húsrúminu fyrir þau.
Einar Jónsson hefir síðan 1894 unnið að þessari list sinni með frábærum áhuga og hæfileikum að þeirra manna dómi,sem vit hafa á. Og er því ekki hægt að ætlast til minna af íslendingum, en að þeir forði honum frá því, að þurfa að mölva öll sín verk í sundur.
Í einu vil eg lúka lofsorði á fjárlaga nefndina, og það er fyrir þá till. hennar, að veitt skuli fé til þess að kaupa listaverk. Bæði er þetta til þess að gefa Íslendingum kost á að koma sér upp listasafni og til þess að hjálpa listamönnum til lífsuppeldis, án þess að þeim verði lagt það til lasta, án þess að þeir verði kallaðir betlarar og ölmusumenn. En þessi till. nefndarinnar ár ekki fullnægjandi. Hér er stjórninni að eins gefin heimild til að verja svo og svo miklu fé til listaverkakaupa. Það er ekkert ákveðið um það, að stjórnin eigi að gera það. Myndi það nú, að mínum dómi, nægja, ef stjórnin vildi lýsa yfir því, að hún skyldi nota þetta fé, sem lagt er til að henni verði heimilað, til standmyndakaupa, og þá að hún skyldi kaupa þær af Einari Jónssyni. Þessa yfirlýsingu þarf, eða stjórninni verður að gera þetta skylt, svo að menn vaði hér ekki í blindni í þessu efni.
Háttv. framsögum. fjárlaganefndarinnar (P. J.) gat þess í mótmælum sínum gegn þessari tillögu um 4000 kr. styrk til að flytja heim verk Einars, að þá fylgdi sá böggull skammrifi, að þá þyrfti líka að veita fé til þess að byggja hús undir þessi verk. En ætli það þyrfti þá ekki líka að byggja hús undir þau listaverk, sem nefndin leggur til að keypt verði ? Eða ætlar hann sér að stafla þeim á biðstofuborðið í Íslandabanka, eða ofan á Útilegumanninn?
Með þessum orðum mínum hefi eg reynt að gera þeim mönnum það ljóst, sem ekki líta á þessar fjárbeiðnir með nægilegri sanngirni, að hér er ekki um neitt betl að ræða. Þessir menn eru ekki að biðja um neinar ölmusur, heldur eru þeir að bjóða landinu alla sína krafta, alt sitt líf. Þeir biðja ekki um nema lítinn styrk til þess að geta helgað landinu alla sína krafta. Og væri því hörmulegt ef þess væri synjað, þar sem mörgum mönnum er það borgað afarverði, hvað lítið sem þeir vinna í landsins þarfir.
Nú skammast menn sín fyrir þá menn, sem létu Sigurð Breiðfjörð drepast úr hungri eymdarkofa hér í Reykjavík og eina Sigurð málara. Og væri það rétt, ef komandi kynslóðir yrðu að bera kinnroða fyrir okkur, sem ekki vitum, hvað verið er að gera undir handarjaðrinum á okkur, heldur látum okkar ungu listamenn drepast úr hungri vegna nokkur hundruð króna sparnaðar.
Vil nú ekki tala meira um þetta að sinni. vil eg fyrst heyra tillögur fjárlaganefndar og annara þingmanna og mun eg tala ýtarlegar um þetta mál og gera samanburð á tillögum manna. Sumar fjárveitingatillögurnar eru að eins til athlægis, og aðrar, sem annara hluta vegna mega alls ekki fá að ganga fram, en þetta vil eg geyma til síðari ræðu minnar. Núna vildi eg að eins reyna að gera mönnum það ljóst, að hér sé ekki um neitt betl að ræða, heldur um líf landsins beztu manna.