15.07.1914
Neðri deild: 12. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (1001)
43. mál, landsdómur
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Mönnum er það kunnugt, að í þessu landi eru til ráðherraábyrgðarlög til tryggingar því, að ekki sé beitt gerræði af hendi stjórnarinnar. Þessi ráðherraábyrgðarlög eru mjög ströng, í sumum atriðum jafnvel svo ströng, að ekki veitti af að orða þau öðruvísi í einstaka stað.
En það er ekki nægilegt að til sé lög, það verður líka að vera til dómstóll til þess að dæma eftir lögunum. Það er nú líka til dómstóll til þessa, en hann er þannig tilbúinn, að varla er hugsanlegt, að hægt yrði að sakfella nokkurn ráðherra, hve sekur sem hann væri.
Það er nú öllum mönnum skiljanlegt, að það er nauðsynjamál, að lögin sé þannig úr garði gerð, að í þeim felist trygging fyrir því, að stjórnin misbeiti ekki valdi sínu á einhvern hátt, það er þýðingarlaust að hafa þennan dómstól einungis til skrauts. En eftir núgildandi lögum, er dómstóll þessi frekar til skrauts en tryggingar, því að varla er hugsandi, að nokkur maður yrði sakfeldur fyrir honum.
Nú er þessi dómstóll samsettur af mönnum, sem kosnir eru af héraðastjórnum og bæjarstjórnum út um alt land. Við bæjarstjórnar- og sýslunefndarkosningar, er það aldrei haft hugfast, hvort þeir sem í kjöri eru, muni hæfir til að kjósa menn í landsdóm, og þótt tekið yrði tillit til þess við þær kosningar, mundi það verða mjög til skemda, því þá mundu þessar kosningar verða »pólitískar«.
Þegar svo hefir verið kosið um alt land með þessum hlægilegu kosningum, þá þarf að fækka þeim kosnu mikið til þess að fá þá tölu, sem á að sitja, dóminn. Alt þetta landsdómslagabákn virðist mér vera mjög óhentugt og hlægilegt.
En svo kemur aðalatriðið, og það er það, hve marga skuli þurfa til að sakfella hinn ákærða. Samkvæmt núgildandi landslögum þarf til þess 4/5 af þeim, sem dóminn sitja. Af þessu virðist okkur flutningsmönnum þessa frumvarpa, sem það muni nær því óhugsandi, að nokkur verði sakfeldur, því til þess að hann verði sýknaður, þurfa einungis 3 menn að kveða upp sýknudóm.
Við háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) erum flutningsm. þessa frumvarps. Eg kom að máli við hann og sagði honum að eg teldi sjálfsagt að reyna að fá þessum lögum breytt, og hann hefir svo samið þetta frumvarp. Það, að eg er settur aðalflutningsmaður þessa frumv., er af því, að eg bjóst ekki við að verða í nefndinni, sem um þetta mál fjallaði, en vildi þó segja þetta til að sýna hvað eg átti við.
Það er nauðsynlegt fyrir frelsi þessarrar þjóðar, að stjórn landsins geti ekki gengið upp í þeirri dulinni, að reka slælega erindi þings og þjóðar, af því að hún hafi engan ótta af neinum lögum. Og fyrst þegar þessum landsdómalögum er breytt, er hægt að halda því fram, að vér höfum fengið þingræði, en fyrr ekki.
Hvort okkur hefir tekist að koma þessum lögum í gott horf með þessu frumvarpi skal eg ekki segja, og mér er ekki kappamál, að það gangi fram í þessu formi.
Af því að mér finst þetta mjög merkilegt mál, þá tel eg víst, að háttv. deild skipi nefnd í það, því að það er oss öllum áhugamál, að þessi dómur verði þannig skipaður. að hægt sé að fá kveðinn upp áfellisdóm yfir sekum manni.
Eg leyfi mér því að stinga upp á 5 manna nefnd, og að málinu sé síðan vísað til 2. umræðu.