15.07.1914
Neðri deild: 12. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)
33. mál, vegir
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Þetta litla frumv. er nokkuð svipað að efni til og það frumv., er nú var síðast rætt, þótt ekki sé það alveg samskonar. — Eg vil leyfa mér að segja örfá orð til þess að láta háttv. deild vita, hvað það er, sem hér er um að ræða.
Það er áhugamál Dalamanna, að fá gerða flutningabraut frá Búðardal til Borðeyrar og er ástæðan til þess sú, að þeir hyggja, að þegar Eimskipafélag Íslands hefir tekið að sér strandferðirnar, eins og væntanlega verður, þá muni það ekki verða talið borga sig, að strandferðabátarnir sigli inn á hverja vík og inn í botn á Breiðafirði, heldur muni það verða látið nægja, að þeir hafi einn eða tvo viðkomustaði við flóann og verði þá þeir Dalamenn neyddir til þess, að útvega sér bát, sem sé nógu stór til þess, að þeir geti flutt á honum vörur sínar héðan úr Reykjavík.
En um leið mundi það reynast mikill hagnaður fyrir ferðamenn að nota þá leið, sem náttúran hefir búið til og fara sjóleið til Hvamsfjarðarbotns, og fara svo þaðan landveg til Borðeyrar. Þetta mundi spara hverjum ferðamanni 3–5 daga og sumir halda því fram, að tíminn sé peningar. Fyrir utan það, að þetta sparar tíma, þá sparar það líka peninga fyrir fæði og fargjald.
Þeir sem um þetta hafa hugsað, hugsa sér þennan veg í sambandi við bát á Húnaflóa og Breiðafirði og yrði þá haft svipað fyrirkomulag og víða er í Noregi, að menn fara með bátum yfir firðina en nota svo umrenningaflutninga yfir hálsana. En til þess að þetta kæmi að haldi, þyrfti að vera fastar umrenningaferðir milli Búðardals og Borðeyrar.
Eg skal taka það fram að þetta mál er Dalamönnum mjög mikið áhugamál. Eg vildi aðeins taka þetta fram nú, en vona að deildin leyfi þessu máli að fara til sömu nefndar, sem málið hér næst á undan.
Annað atriði, sem er í þessu frumv. mínu, er um það, að breyta stefnu þjóðvegarins um Dalina. Þessi þjóðvegur liggur nú um Hjarðarholt í Laxárdal, en þingmálafundirnir í Dalasýslu vildu endilega, að þeirri stefnu yrði breytt þannig, að vegurinn lægi um Bröttubrekku, Sökkólfsdal, Miðdali, Breiðamel, milli Saura og Sauðhúsa, um Búðardal og þaðan inn svonefnt Land fyrir neðan túnið í Ljárskógum að Fáskrúð. Það er ekki nema á þessum litla kafla, sem menn hugsa sér að fá stefnu vegarins breytt. Landssjóður tæki með þessu móti að sér að setja brú á Laxá, en með þessu móti næði vegurinn til kauptúns: og auðvitað mundi sýslusjóður kosta viðhald hans.
Nú er þegar lagður vegarspottinn frá Hjarðarholti til Ljárskóga, hann yrði, ef þessi breyting nær fram að ganga, ónýtur. Það er auðvitað óhagur fyrir landssjóð að eyðileggja nýjan og vel gerðan veg, en kunnugir menn, sem eru á móti þessu máli, segja að ekki muni nema meira en hérumbil 420 föðmum sem lengra verði að gera veginn frá Búðardal á vegarspottann, sem þegar er gerður. En um þetta atriði get eg enga áreiðanlega skýrslu gefið. Ef landsverkfræðingurinn Jón Þorláksson hefir ekki nú sent skýrslu sína um þetta mál til stjórnarráðsins, þá skal eg tala við hann og biðja hann um að flýta henni sem mest. Þetta mál þarf að ganga sem fyrst fram, því að nú er beðið með brúna á »Ljá« þangað til fæst vitneskja um, hvort þingið vill breyta þessu eða ekki.
Eg skal nú ekki orðlengja þetta meira, en vona að deildin leyfi þessu máli að fara til veganefndarinnar.