29.07.1914
Neðri deild: 24. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (106)
91. mál, strandgæsla
Framsögum. (Þorleifur Jónsson):
Það er í sjálfu sér óþarft að halda langa ræðu um þetta mál, enda er fundur nú orðinn langur og menn orðnir þreyttir, enda vill svo til að nefndin hefir öll orðið sammála. Nefndarálit það, er hér liggur fyrir á þskj. 230, sýnir nokkurn veginn greinilega stefnu þá, sem nefndinni virðist að þingið ætti að taka í þessu máli.
Eins og tekið er fram í áliti nefndarinnar, er hún fyllilega samþykk frv. hvað það snertir, að ákvæði sé sett um samband einstaklinga þeirra, er sandsvæðin eiga og landssjóðs. Það er eftir því sem nefndin hefir getað kynt sér, mjög nauðsynlegt að lögleiða ákvæði í þá átt, því hingað til mun alt slíkt hafa verið nokkuð reglulaust og samningalaust.
En breyt.till. nefndarinnar stefna líka í aðra átt. Þegar Búnaðarfélag Íslands var stofnað, var það skoðun margra, að það ætti að taka undir sína umsjón flest það, er að ræktun landsins lyti. Það sýnist líka vera hið eðlilegasta og hagkvæmasta, að ein stofnun hafi alt slíkt á hendi, enda hefir sú orðið niðurstaðan, að það hefir hönd í bagga með flestu því, er hér að lýtur, nema sandgræðslunni. Hún hefir verið tekin út úr og falin sérstökum manni. En þar sem sandgræðslan er einmitt innifalin í því, að fá gras til að spretta, þar sem áður vóru sandauðnir, eða varna því að skemdir haldi áfram á gróðri landsins, af sandfoki, eða með öðrum orðum er nátengt grasræktinni, þá er það ekki nema eðlilegt, að Búnaðarfélagið hafi einnig umsjón með þessu. Eg veit ekki hvað veldur því, að þetta mál var ekki lagt undir félagið þegar í byrjun, einkum þar sem eg get fullyrt, að það var fyrir tilstilli Búnaðarfélags Suðuramtsins á árunum milli 1880 og 90, að byrjað var á sandgræðslu, aðallega þá með vatnsveitingum.
Eg get nú ekki séð, að sandgræðsluvinnan eða umsjónin með henni sé svo flókin, að félagið geti ekki þess vegna haft það með höndum. Ráðunautar félagsins eru einmitt oft á ferðalagi fyrir Búnaðarfélagið á þeim slóðum, sem helzt er átt við sandgræðslu og gæti þeir þá undurvel leiðbeint mönnum og sagt fyrir um sandgræðslu á slíkum ferðum, án þess að af því leiddi nokkur aukakostnaður fyrir Búnaðarfélagið eða landssjóð.
Nefndin hefir átt tal við formann Búnaðarfélagsins, og þótt hann sæktist ekki eftir því að fá þetta mál í sína umsjá, þá kvaðst hann eigi vilja að Búnaðarfélagið skoraðist undan því, ef þingið vildi svo vera láta. Breyt.till. fer því í þá átt, að fela þetta mál umsjá Búnaðarfélagsins undir yfirstjórn landstjórnarinnar, eins og nú á sér stað. Fyrsta breyt till. nefndarinnar fer því fram á, að framan við frumvarpið sé sett ný grein um þetta efni, og hinar breyt.till. allar eru afleiðing af þessari einu. Svo verði hún samþykt, þá eru hinar breyt.till. nefndarinnar Sjálfsagðar, því að þær eru ekki annað en afleiðing af aðaltillögunni, þannig, að í stað skógræktarstjóra komi Búnaðarfélag Íslands. Nefndin hefir lagt þetta til vegna þess, að hún hefir orðið vör við talsverðan óánægjuurg út af núverandi fyrirkomulagi, bæði í blöðum og víðar. Nefndin áleit, að eitthvað mundi hæft í því, að umsjóninni væri óheppilega fyrir komið og ekki við almennings skap.
Eg skal ekki fara langt út í það, að verði þetta mál lagt undir Búnaðarfélagið, þá væri ef til vill ekki óheppilegt, að eins væri farið með skógræktarmálið. Það er drepið á þetta í nefndarálitinu. Eg skal ekkert um það segja, hvort þessu verði komið við, en sennilegt þykir mér, að það yrði fult eins hagkvæmt.
Eg skal svo ekki orðlengja þetta frekar. Málið er svo ljóst, og eg vænti þess, að háttv. deild samþykki frumv. með þeim breytingum, sem nefndin stingur upp á.