20.07.1914
Neðri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (1068)

74. mál, land til stækkunar á kirkjugarðinum í Reykjavík

Einar Arnórsson:

Eg er samdóma hv. flutningsm. (J. M.) um það, að skylda hvíli á landssjóði til þess, að sjá þjóðkirkjusöfnuði Reykjavíkur fyrir kirkjugarðsstæði. Það eru aðeins nokkur orð, sem eg ætla að segja væntanlegri nefnd til athugunar.

Sem kunnugt er, þá eru hér fleiri söfnuðir en þjóðkirkjusöfnuðurinn, sem sjálfsagt munu nota kirkjugarðinn. Þar sem nú landssjóði ber aðeins skylda til að sjá þjóðkirkjusöfnuðinum fyrir kirkjugarðsstæði, þá virðist mér það ósanngjarnt, að landssjóður einn eigi að bera allan þann kostnað, sem af stækkun kirkjugarðsins leiðir. Í lögum um utanþjóðkirkjumenn, nr. 4, 9. febr. 1886, 15. grein, segir:

»Rétt er utanþjóðkirkjumönnum þeim er prest hafa, eða forstöðumanni þeim, sem konunglega staðfestingu hefir fengið eftir 13. gr., að nota grafreiti þá, er þjóðkirkjan hefir gjöra látið, ef þeir gjalda legkaup og taka þátt í kostnaði til viðhalds eða stækkunar grafreitanna«.

Eg vildi því aðeins skjóta því til væntanlegrar nefndar, hvort ekki mætti skylda aðra söfnuði til þess að taka hlutfallslegan þátt í kostnaðinum.