07.08.1914
Neðri deild: 37. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1078 í B-deild Alþingistíðinda. (1085)

74. mál, land til stækkunar á kirkjugarðinum í Reykjavík

Framsögum. (Sveinn Björnsson):

Aðeins stutt athugasemd.

Eg hafði aldrei sagt, að silfurskildir gæti fúnað, en þeir geta skaddast og slitnað.

Þetta mál er ekki eins einfalt og hv. 1. þm. Húnv. (G. H.) hyggur. Það er ekki nóg að taka blýant og pappír og reikna og reikna. Mörg minnismerki eru í kirkjugarðinum, sem ekki má hrófla við. En umsjónarmaður kirkjugarðsins hefir tekið það fram, að þegar hafi verið grafið aftur og aftur í þær grafir, sem ekki standi svo sérstaklega á um, að ekki má grafa í þær.