17.07.1914
Neðri deild: 14. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1084 í B-deild Alþingistíðinda. (1095)
28. mál, fækkun sýslumannsembæta
Einar Arnórsson:
Háttv. þm. Húnv. (G.H.) mintist á sameining Árness- og Rangárvallasýslna og Dala- og Strandasýslna. Háttv. þm. Dal. (B. J.) hefir nú þakkað honum góð boð fyrir hönd Dalamanna, og tel eg mér einnig skylt að þakka fyrir hönd Árnesinga. Eg efast nú annars um, að Árnesingar muni verða honum þakklátir fyrir þessa tillögu.
En svo að eg víki að tillögu þessari nánara, þá hefir mér virzt svo, að þegar ræða er um fækkun embætta, t. d. sameining prestakalla, þá sé það almennings vilji, að fækka þeim, en hvernig fer svo, þegar á að fara að framkvæma það? Það er t. d. víst, að Húnvetningar vilja láta fækka embættum alment á landinu, en með engu móti vilja þeir fækka þeim hjá sér. Þannig var um prestakalla samsteypuna. Allir vildu fækka prestum. En í þeim prestaköllum, sem mistu prestana, kvað við hinn mesti harmagrátur. Nú á síðari árum hefir læknum verið fjölgað til muna, og tel eg þá fjölgun eðlilega. Menn vilja ekki, að þeim sé gert óbærilegt eða of erfitt fyrir að ná til þess embættis- eða sýslunarmanns, sem þeir þurfa að brúka. Nú er þess að geta að sýslumenn, að þar sem þeir njóta trausts almennings, mega þeir teljast nokkurskonar lögfræðilegir ráðunautar; íbúarnir leita til þeirra í vandamálum sínum. Þetta er mér kunnugt um, þótt aldrei hafi eg sýslumaður verið. Get eg og skírskotað til þeirra háttv. þingmanna hér í deildinni, sem sýslumenn eru eða hafa verið.
Eg er samþykkur háttv. þm. Dal. (B. J.) um það, að þessi tillaga háttv. þm. Húnv. (G. H.) sé kák eitt. Ef tillagan hefði farið fram á það, að athuga embættaskipun landsins í heild sinni og þar með eftirlaunamálið, þá hefði hún mátt teljast vel til fallin. En það verður ekki talið heppilegt, að taka þannig eina embættisstétt út úr. Sýslumenn, að meðtöldum bæjarfógetanum í Reykjavík, eru nú 19 á landi hér. Eg þykist mega fullyrða, að engin sýsla mundi sætta dig við það, að sýslumaður hennar væri frá henni tekinn. Menn eru að tala um þjóðarviljann í þessu sambandi. Það getur vel verið, að t. d. Húnvetningar vilji láta sameina Dala- og Strandasýslur eða Árness- og Rangárvallasýslur, en vilji Húnvetninga hér um getur ekki metist framar en vilji þeirra manna er þar búa, sem til er ætlast, að samsteypan fari fram. Mönnum gæti alveg eins komið til hugar, að sameina Strandasýslu og Húnavatnssýslu. En hvað mundu Húnvetningar segja við því?
Háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) mintist á lögfræðingaskólann í þessu sambandi. Það er alveg rétt hjá honum, að óviðurkvæmilegt er að halda uppi embættum skólans vegna. En eg vil benda honum á það, að fleira er fyrir lögfræðinga að gera, en að taka við embættum landsins. Lögfræðingar eru öðrum framar vel fallnir til ýmsra starfa. Það er alveg víst, að maður með lögfræðaþekkingu stendur að öðru jöfnu betur að vígi en aðrir.
Það kemur enn fram í þessu máli sem oftar, að svo er sem menn haldi að stjórnin geti alt, sé almáttug. Eg býst við því, að nóg megi fá til þess, að dengja á stjórnina, en ekki sé jafn auðvelt að fá þann mann í stjórnarsess er alt fái gert. Menn eins og Napoleon og Julius Cæsar fæðast ekki oftar en svo sem tíundu hverja öld.
Háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) virðist vilja nema alt það burt, sem ekki er gróði að. Ef háttv. þm. á við fjárgróða aðeins, þá mundi það verða ærið margt, er kippa þyrfti burt. Þá mætti víst kippa burt læknastéttinni; ekki sést á landsreikningunum, að landið hafi neinn gróða af læknum. Sama er að segja um sýslumenn og háskólann. Þar á meðal embætti það, er háttv. þm. skipar. En eg býst nú ekki við, að háttv. þingm. hafi haft orðið gróði í svo þröngri merkingu. Hann mun einnig hafa átt við andlegan gróða. En sá gróði getur oft verið álitamál; engar áreiðanlegar metaskálar eru til þess að vega hann á. Eftir þeirra manna skoðun, sem mestmegnis líta á fjárgróða, væri ekki vert að hlynna að skáldskap og fögrum listum, því að beinn fjárhagslegur arður sést sjaldan af þeim greinum fyrir löndin í heild sinni. Á þetta mega menn aldrei líta einsýnt. Menn verða að hugsa jafn um bæði fjárhagslegan gróða og andlegan. Andleg störf og verkleg eru jafnnauðsynleg hverju þjóðfélagi, sem þykist vera siðað þjóðfélag.
Viðvíkjandi lagakenslunni, svo að eg víki aftur að henni, þá verð eg að telja hana mjög nauðsynlega, eins og yfirleitt kenslu í hverri þeirri grein, sem við getum veitt kenslu í, einkum og sérstaklega í þjóðlegum greinum. Hvaða samræmi er í því, að þykjast vilja efla sjálfstæði landsins, en ráðast um leið á flest það, sem er undirrót virkilegs sjálfstæðis — sem er andlega hliðin á málinu?
Ef háttv. flutn.m. (G. H.) hefði komið fram með þingsályktunartillögu um það, að láta rannsaka alt embættislaunamálið og embættisskipunarmálið, þá mundi eg hafa getað fylgt honum þar að málum, því að eg tel það mikið rannsóknarefni, sérstaklega eftirlaunin, ekki eingöngu hvað dýrast er í því efni, heldur einnig hvað hagkvæmast er, þegar alt er sanngjarnlega metið og af nægilegri þekkingu.
Viðvíkjandi tillögunni sjálfri, skal eg játa það, að eg er ekki nægilega kunnugur störfum sýslumanna til þess, að geta fullkomlega dæmt um þau. En það þarf ekki annað, en að líta í nokkra árganga af Stjórnartíðindunum til þess að sjá, að sýslumannsembættin eru ruslakistur, sem öllu er dembt í, bæði nýju og gömlu. Áður en talað er um að fækka sýslumönnunum, ætti menn fyrst að hafa yfirlit yfir, hvaða störf þeir hafa á hendi, og hversu mörg og margbrotin þau störf eru.