20.07.1914
Neðri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)
28. mál, fækkun sýslumannsembæta
Sigurður Sigurðsson:
Þegar þingsályktunartill. á þskj. 43. var hér til umræðu í deildinni síðast á föstudaginn var, þá kom það í ljós hjá sumum hv. þm., sem þá töluðu, að þeim þótti hún ekki nógu ítarleg eða ekki ganga nógu langt. Eftir því sem flutn.m., hv. 1. þm. Hún. (G. H.), skýrði hana, þá skildist mér svo, sem það eitt vekti fyrir honum, að sameina örfáar sýslur, er þær losnuðu, og nefndi hann þá til dæmis Stranda- og Dalasýsla og svo Árnes og Rangárvallasýslu. Þar sem till. á nú ekki að ganga út á annað en þetta, þá býst eg við, að margir líti svo á, sem hún sé næsta þýðingarlítil í sjálfri sér. Þess vegna hefi eg nú, ásamt háttv. 2. þm. N.-Múl. (J. J.) leyft mér að koma fram með breyt. till. á þskj. 136. Hún fer í þá átt, að skora á stjórnina að athuga rækilega, hvort ekki sé tiltækilegt, að aðskilja umboðsvaldið og dómsvaldið og fækka sýslumönnum að mun, og ef svo virðist, að það yrði ódýrara, þá að leggja frum. í þá átt fyrir næsta þing.
Því hefir nú verið kastað fram hér áður, að það hefði litla þýðingu, að skora á stjórnina. Hún gerði ekkert í málinu, svo að því væri ekki borgnara eftir en áður. Eg á nú bágt með að trúa þessu, og að minsta kosti er það alveg órannsakað mál, hvað slík rannsókn kynni að geta leitt í ljós. Það gæti farið eins og sumir óttast, að þessi leið yrði ekki fær, og að þetta fyrirkomulag yrði ekki kostnaðarminna, en það sem nú er, en um það er ekki hægt að segja og þetta þarf að rannsaka.
Og úr því þessi till. var á ferðinni annað borð, þá álítum við að rétt væri, að stíga sporið til fulls, eins og oft hefir áður verið talað um að þyrfti að gjöra. Það er kunnugt, að það er vilji alþýðu að fá embættum fækkað, ef þess er kostur. Og þeim, sem um það hafa hugsað, hefir sumum dottið í hug, að fyrst ætti að bera niður á sýslumönnunum og reyna, ef hægt væri, að koma störfum þeirra fyrir á hagkvæmari hátt. Það hefir verið sagt í sambandi við þetta að erfitt gæti orðið að reka mál sín, ef ekki væri nema einn dómari í hverjum landsfjórðungi. En þá er það um leið hugsanlegt, að auka mætti verksvið sáttanefnda, og gæti það orðið til þess að koma í veg fyrir það á ýmsan hátt, að málin færi lengra en til þeirra. — Við segjum ekkert um það, hvort þetta muni reynast tiltækilegt, en við viljum að það sé rannsakað, og ef svo fer, að þessi leið verði farin, og hægt verður að leggja niður sýslumannsembættin flest eða öll, á álít eg það vel farið, og það muni verða landssjóði mikill sparnaður.
Það má nú búast við því, að ýmsir lögfræðingar verði mótfallnir þessari tillögu. (Bjarni Jónsson: Er þm. að sneyða samþingismann sinn?). Nei, hann er nú kominn á þá grænu grein. En það eru til aðrir lögfræðingar, líklega yfir 20, sem bíða eftir því, ef eitthvert embætti losnar, og það er skiljanlegt, að þeim mundi ekki líka það vel, ef niðurstaðan yrði sú, að auðið væri að fækka sýslumannaembættum.
En hvað, sem um það er, þá vona eg nú að till. okkar fái góðan byr. Hitt álít eg einskis vert, að miða við það eitt, þó að hægt væri að sameina svo sem tvær sýslur, og allra sízt getur verið um það að tala, að sameina Árness- og Rangárvallasýslur. Það kynni þá heldur að vera Dalasýsla og Strandasýsla, og svo ef til vill Húnavatns- og Skagafjarðarsýslur.
Úr því að þessu máli er hreyft, þá verður að taka það fyrir frá rótum. Og er fyrir mitt leyti treysti stjórninni til hins bezta í þessu efni.