18.07.1914
Neðri deild: 15. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)

46. mál, ráðstafanir gegn útlendingum vegna íslenskrar landhelgi

Flutn.m. (Stefán Stefánsson):

Tillögu þessa hefi eg leyft mér að koma hér fram með samkvæmt ályktun frá þingmálafundi, sem haldinn var á Siglufirði nú í vor sem leið. Það hefir viðgengist nú um nokkur undanfarin ár, að útlend skip hafa komið á Siglufjörð þegar í byrjun veiðitímans og legið þar síðan allan síldveiðitímann sem fljótandi stöðvar á höfninni og tekið þar á móti síld úr fleiri eða færri veiðiskipum. Í þessum stöðvarskipum er svo síldin söltuð; hvort þar fer fram kaup eða sala á aflanum, eða allur sá skipastóll, ásamt stöðvarskipinu, er eign eins og sama manns eða útgerðarfélags, er mér ekki ljóst. En hvort heldur sem er, þá er það í mesta máta undarlegt, þar sem öll síldin er verkuð »um borð«, að þeir menn, sem þennan útveg reka, skuli hvorki þurfa að vera búsettir hér eða hafa leyst borgarabréf. Að þeim skuli leyfast að hafast slíkt að á höfninni, án þess að hafa uppfylt þau skilyrði, sem virðast nauðsynleg til slíks atvinnureksturs. Að vísu munu útgerðarmenn þessara skipa oftast greiða toll af síldinni og sömuleiðis áritunar og vitagjald, en önnur gjöld til opinberra þarfa, svo sem sveitargjöld, alls ekki. Auk þess er ekkert eftirlit með því, hve mikil síld flyzt héðan til útlanda á þennan hátt, heldur er þar aðeins farið eftir þeirra eigin sögusögn, því að þegar skipin eru hlaðin fara þau til útlanda með síldina, án nokkurs frekara umtals eða eftirlits.

Ennfremur á það sér stað um fjölda skipa, er stunda síldveiðar fyrir Norðurlandi, og hafa bækistöð sína á Siglufirði, að þau ýmist salta aflann þar sem þau veiða á leiðinni í land, eða á höfninni í sjálf veiðiskipin, en flytja ekkert af síldinni í land til verkunar. Og þessi skip greiða alls engan toll af veiðinni, ekki einusinni af því, sem þau verka í landhelgi eða inni á höfn og þá auðvitað ekki heldur sveitarútsvar, en áskriftar- og vitagjald munu þau borga.

Á þessu álíta Siglfirðingar sérstaklega nauðsynlegt að bót sé ráðin. Þeir æskja þess, að lög sé sett um það, að stöðvarskipunum sé ekki heimilt að verka síldina »um borð« á höfninni, án þess þeir sé hér búsettir eða hafi borgarabréf. Sérstök umkvörtun um þetta, eða fyrirspurn til stjórnarráðsins hefir verið send af þeim útlendu útvegsmönnum, sem búsettir eru þar í landi og bygt hafa þar mannvirki, bæði hús og bryggjur, með ærnum kostnaði. Stöðvarskip þessi keppa einmitt við þá og því hafa þeir gert fyrirspurnina til stjórnarinnar um það, hvort það geti verið leyfilegur atvinnurekstur, án þess að krafist sé, að útvegseigandi hafi búsetu í landi og leyst borgarabréf.

Þessari fyrirspurn hefir stjórnin engu svarað, og er það óneitanlega dálítið undarlegt; en hvað sem um það er að segja, þá virðist svo sem hér sé full nauðsyn á, að skýrt sé kveðið á um það í lögum, að skip eða útvegamenn, sem allan veiðitímann liggja inni á höfnum, taka þar á móti síld úr fleiri eða færri veiðiskipum og verka hana að öllu leyti til útflutnings, sé skyldaðir til að hafa hér búsetu.

Eg hefi, eins og áður er sagt, flutt þessa tillögu samkvæmt ósk kjósanda minna og af því, að eitthvað þarf að gera til þess í fyrsta lagi að koma í veg fyrir það, að menn geti jafnvel keypt og verkað síld á höfnum inni án þess að hafa búsetu í landi og borgarabréf, og í öðru lagi til þess að útlendum veiðimönnum haldist það ekki uppi, að greiða engan toll af þeirri síld er þeir salta í landhelgi og flytja burt af höfnum til útlanda. Ennfremur virðist það liggja í augum uppi, að þessum mönnum ætti að bera bein skylda til þess að greiða sveitarútsvar.

Skal eg svo ekki fara um þetta fleiri orðum, en vona að háttv. deild samþ. að fela stjórninni að koma fram með einhver skýrar í ákvæði um þetta á næsta þingi.