04.07.1914
Neðri deild: 3. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (113)
59. mál, atvinna og vélgæsla
Ráðherra (H. H.):
Síðastliðinn vetur barst stjórnarráðinu erindi frá íslenzkum útgerðarmönnum botnvörpuskipa hér í bænum, þar sem þeir kvörtuðu um, að svo mikill hörgull væri á vélstjórum, sem fullnægði ákvæðum vélstjóralaganna frá 11. júlí 1911, að til vandræða horfði, en hins vegar skýrðu þeir frá, að völ væri á mönnum hér, sem hæfir væri til vélstjórastarfa á botnvörpuskipum, þó að ekki fullnægði þeir ákvæðum laganna. Útgerðarmennirnir fóru því fram á, að stjórnarráðið útvegaði bráðabirgðalög, sem heimiluðu undanþága frá kröfum þeim, sem lögin frá 1911 gera til vélstjóra. Stjórnarráðið varð við þessum tilmælum, eftir að hafa leitað álits Fiskifélags Íslands og stjórnar vélstjórafélagsins hér í bænum. Bráðabirgðalögin vóru gefin 2. marz 1914, samkvæmt því, sem heimilað er í stjórnarskránni. Það eru þessi bráðabirgðalög, sem nú eru lögð fyrir þingið í frumvarpsformi, í því skyni að þau verði að lögum. Hér er ekki farið fram á að veita nokkrum manni fullkomið vélstjóraskírteini án þess að hann fullnægi ákvæðum laganna frá 1911, heldur að eins að þeir menn, sem til þess teljast hæfir, geti fengið leyfi til að gegna vélstjórastörfum meðan lögin eru í gildi, til þess að koma í veg fyrir, að vélstjóraeklan standi botnvörpuútveginum fyrir þrifum.
Eg vonast eftir, að allir geti verið samdóma um gagnsemi þessara laga og að frumvarpið fái því að ganga fyrirstöðulaust gegnum þingið.