25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1138 í B-deild Alþingistíðinda. (1130)
81. mál, skoðun á útfluttri ull
Einar Jónsson:
Eg bjóst við því, að ýmsir þm. léti sig þetta mál miklu skifta, og eg áleit ekki óeðlilegt, þótt einnig þeir tæki til máls, sem ekki verzla með þá vöru, sem hér er um að ræða.
Þegar það var tekið til bragðs hér um árið til þess að bæta ullarmarkaðinn, að styrkja þennan eina mann, hr. Sigurgeir Einarsson, til utanfarar, þá hugðu margir, að það eitt mundi nægja til fulls. Það áleit eg aldrei, og eg vil segja, að það hafi verið fullvel ráðið, þótt ekki væri að treysta því, að það eitt yrði nóg til þess að koma ullarverzluninni í það horf, sem hún þyrfti að komast. Það er mjög gagnlegt, að menn eigi kost á leiðbeiningu í ullarþvotti og þess háttar, ef þeir kunna að færa sér það í nyt, en eg þori ekki að ábyrgjast að það komi að tilætluðum notum, nema þetta fylgi með, sem hér er farið fram á í þessari tillögu.
Kostnaðurinn, sem af þessu leiðir, og háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) mintist nokkuð á, vona eg að blæði engum í augu.
Þó að hann yrði um eða yfir 2000 kr. á ári, þá er það ekki stór fúlga fyrir landssjóð, en hins vegar stórgagn í aðra hönd. Fyrst og fremst er það landinu sómi, að varan sé sem vönduðust. Í öðru lagi verður þá vöruverðið jafnara meðal einstakra manna, og í þriðja lagi verður verðið fastara og hærra á heimsmarkaðinum. Eftir því, sem vér höfum átt kost á að kynna oss málið, er alt þetta óyggjandi, og þá er æði mikið unnið, þótt ekki væri nema það, að þá fengi hinn fátæki sama verð og hinn ríki, ef báðir hefði vandað jafnt verkunina. Eg sé ekki betur, en að vörunni mundi fara stórkostlega fram, ef matið yrði innleitt, og hagnaðurinn nema miklu meira en því, sem hér er farið fram á, að greitt verði úr landssjóði.
Vér höfum nú farið þessa leið, að fela stjórninni málið með þingsályktunartill., þar sem teknir eru fram aðal punktarnir í því, sem vér ætlumst til. Vona eg, að stjórnin láti sér það vel líka og að háttv. deild leyfi till. fram að ganga, hvað sem á eftir fer.
Eg vona, að deildin lofi þessu máli að minsta kosti að halda áfram til stjórnarinnar. Ef henni lýst illa á málið, þá er líka þar með búið og ekkert við því að segja.
Eg er þakklátur háttv. þm. Dal. (B. J.) fyrir það, hve hlýlega hann talaði í garð tillögunnar, en þar sem hann var að snupra oss fyrir að hafa ekki komið með málið hér inn á þing í frumvarpsformi, þá er því til að svara, að vér álítum málið ekki nægilega undirbúið til þess. Skal líka geta þess, að vér höfðum herra Sigurgeir Einarsson í ráðum með oss um meðferð þessa máls. Vér vildum líka láta bændur út um land kynna sér málið og þingmálafundi ræða það við tækifæri, þótt vér reyndar getum gengið að því sem vísu, að þeir verði oss sammála um þetta.
Það er eðlilegt, að ekki sé allir spentir fyrir, að þetta mál gangi fram, en vona þó, að deildin samþykki tillöguna.