04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)

92. mál, mæling á skipaleið inn á Syðri-Skógarneshöfn

Flutningsm. (Bjarni Jónsson):

Eg er aðeins meðflutningsmaður þessarar tillögu; aðalflutningsmaðurinn er hv. þm. Snæf. (S. G.). Eg hefi lofað að gera grein fyrir þessari tillögu í hana stað, af því að honum er þungt um mál, eins og allir vita.

Það þarf ekki að fjölyrða um það, að samgöngur á sjó eru lífsnauðsyn þeim héruðum, sem hafa litla og vonda landvegi. Hér stendur svo á, að frá Borgarnesi og vestur að Búðum er enginn nýtilegur verzlunarstaður löggiltur, nema Syðra-Skógarnes í Hnappadalssýslu, en þessum stað er mjög vel í sveit komið, því að, að honum liggja grösugar víðlendar sveitir, og skal eg einkum nefna til þess Kolbeinsstaðahrepp, Eyjahrepp, Miklaholtshrepp og syðri hluta staðarsveitar, og er Skógarnes hérumbil í miðju þessara sveita. Þessi héruð eru glæsileg að mörgu leyti og gott er þar víða undir bú, enda eiga þar heima í kringum 800 manna. Skógarnes var löggiltur verzlunarstaður árið 1905. Þar er dágóð höfn þegar inn er komið, en leiðin inn á höfnina er vandrötuð, meðan innsiglingin er ekki mæld. Hefir þetta dregið mjög úr skipakomum þangað, því að einsog kunnugt er, er ekki hægt að fá skipin til að koma við á þeim höfnum, sem hafa ómælda innsiglingu. Þetta hefir gert það að verkum, að nú er Skógarnes alveg lokað fyrir viðkomum strandferðaskipanna, sem ella mundu koma þar oft, því að lykkjan er svo sem engin. Á það skal einnig bent, að samgöngumálaráðunauturinn leggur það til í ferðaáætlunum sínum, að strandferðaskipin komi hvergi þar, sem skipaleið til hafnar er eigi mæld.

Þetta kemur illa og ómaklega niður á svo framfaravænlegum héruðum, sem hér eiga hlut að máli, þar sem hafnleysur eru á báðar hendur við Skógarnes, en hár fjallgarður að norðan, en langt til Búða og aðflutningar allir afar erfiðir og dýrir. — Þessi tillaga fer fram á það, að stjórnin hlutist til um, að gerð sé áætlun um það, hvað mikið kosti að mæla þessa skipaleið og láti síðan mæla hana. Það er ekki í fyrsta sinn nú, sem þessi málaleitun kemur fram. Hver þingmálafundur vestra þar hefir í seinni tíð haft þetta mælingarmál, sem vonlegt er, með fremstu málum á dagskrá. Þess var áður leitað hjá stjórninni, að hún hlutaðist til um, að þessi mæling yrði framkvæmd, og var þá ráðgert, að hún skyldi fram fara um leið og mælingin á Gilsfirði. En svo er að sjá, sem þetta hafi gleymst, því að nú er mælingunni á Gilsfirði lokið, en Skógarnesleiðin ómæld enn sem komið er. Þegar nú undanfarandi stjórn hefir sama sem lofað að láta þessa mæling fara fram, en hefir samt ekki gert það, verður að skoða það sem gleymsku, en þeirrar gleymsku eiga þeir, sem í þessum héruðum búa, ekki að gjalda.

Það er fullerfitt fyrir þá um alla aðflutninga þótt þetta sé gert. Leiðir inn á hafnir eru sama sem þjóðvegir á landi, nema að miklu meira er áríðandi, að skipaleiðirnar sé nákvæmlega mældar, því að menn drukna þó ekki á landi, þótt þeir lendi í ófærum, en allir vita, að hættulegt er að sigla um sjóinn þegar menn þekkja ekki, hvar sker og slíkar torfærur eru.

Eg vona nú fyrir hönd aðalflutningsmanns þessarrar tillögu og fyrir hönd héraðsins og mína eigin, að háttv. deild lofi þessu máli nú að ganga sína leið til stjórnarinnar.