05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í B-deild Alþingistíðinda. (1149)
105. mál, baðefni
Pétur Jónsson:
Eg get ekki almennilega séð, hvað háttv. tillögumenn hafa meint með þessari tillögu sinni, annað en það, að vekja athygli stjórnarinnar á því, að til eru baðlyf, sem kend eru við Cooper.
Mér skildist svo á háttv. flutningsm., sem hér væri aðeins um eina tegund baðlyfja. að ræða, og tillagan bar sama vott, en þær eru bæði margar og misjafnar, sem kendar eru við Cooper. Að minsta kosti þekki eg tvær. Annað er duft, sem í er töluvert eitur (arsenik), og mun vera alt annars eðlis, en þau böð, sem fita og bæta ullina. Það hefir að vísu reynzt vel í Þingeyjarsýslu, en þó ekki þótt örgrant um, að það vildi grysja ull, enda er í því eitur, eins og áður er sagt, og því ekki allskostar hættulaust með það að fara. Einn kostur þess er sá, að það fælir flugur og aðra óværu frá skepnum. Og hinn annar, að það er örugt að drepa lús. Önnur baðlyfategund, sem kend er við Cooper, er hinn svonefndi Albinlögur, og veit eg, að það hefir reynzt mjög lélegt og svikult, og ætti ekki að hvetja stjórnina til að taka það í tölu þeirra baðefna, sem mælt er með sem óyggjandi. Sannleikurinn er þessi: Það eru til afarmargar Coopersbaðlyfjategundir af ýmsu tægi. Sumar eru storknar, aumar fljótandi og sumar duft, aumar fitandi og aðrar ekki, en firma það í Englandi, sem selur þessi baðlyf víða um heim, kennir þau öll við sama nafnið, til merkis um það eitt, að þau sé frá því fengin.
Þá veit eg ekki heldur, hvort þessi tillaga á að miða í þá átt, að stjórnin eigi að leyfa eða löggilda þetta baðefni, hvort sem dýralæknir er því meðmæltur eða eigi. — Það stendur nú ekki beinlínis í lögunum, að þær einar baðlyfjategundir megi nota, sem dýralæknir mælir með, þótt gjört sé ráð fyrir, að stjórnin velji það með ráði hans, en það liggur í hlutarins eðli, að eftir þeim ráðum verður hún að fara, og svo kanske efnarannsóknarstofunnar. Hvort þessi tillaga á að koma í veg fyrir það, að stjórnin geti valið frjálst um baðlyf með ráði dýralæknis, veit eg ekki, en hitt þykir mér líklegt, að sum af Coopersböðum mætti hún vel leyfa, t. d. duftið, en önnur alls ekki.