05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (1150)

105. mál, baðefni

Stefán Stefánsson:

Eg hefi gjörst meðflutningam. að þessari till. af því, að mér þótti mega ráða það af líkum, að það mundi vekja talsverða óánægju, ef þessi baðlyf kæmist ekki að og yrði ekki löggilt. Mér er kunnugt um það, að í Eyjafirði hafa þessar baðtegundir einmitt verið notaðar mest af öllum, og það er einróma álit manna þar, að engin lyf sé jafngóð sem þau, eða betri. Eg verð því að játa, að mér kom það á óvart, þegar eg sá ekki þessi baðlyf meðal hinna lögboðnu baðlyfja. Eg hugði, að það mundi koma af því, að enginn hefði komið með tilboð um það til stj.ráðsins nógu snemma. En nú hefi eg hér bréf til stjórnarráðsins, dags. 16.

des. f. á., sem samstundis hafði verið því sent, og skal eg með leyfi hæstv. forseta, leyfa mér að lesa kafla úr því:

»Þeir herrar, W. Cooper & Nephews, hafa óskað þess, að vér færum þess á leit við hið háa stjórnarráð, að það gæfi firmanu kost á að keppa um sölu á baðlyfjum þeim, er keypt kunna að verða til landsins«.

Eg veit nú ekki, hvernig á að skilja þetta öðruvís en sem fullkomið tilboð og ósk um það, að þetta baðlyf komist að, meðal hinna lögskipuðu baðlyfja. Að minsta kosti hefði stjórnin verið í sínum fulla rétti, þótt hún hefði leyft það, sem eitt af þeim lyfjum, sem baða má úr. Það getur verið, að efnarannsóknir á Coopersböðum hafi þá ekki verið fyrir hendi, en þá hefði stjórnin átt, að því er mér virðist, að gjöra einhverjar ráðstafanir til þess að þær yrði fengnar.

Til sönnunar því, að almenningur óski þess að mega nota þessi baðlyf, skal eg geta þess, að á sýslufundi, þar sem hæstv. ráðh. var oddviti, hefir verið óskað eftir þeim, að þær yrði heimilaðar, enda er fjöldi manna víðsvegar um land, sem óskar að þær sé seldar eða lögboðnar.

Eg skal benda á einn bónda, sem er alkunnur að því, að vanda meðferð á fé sínu meira en alment gjörist, og það er búhöldurinn Magnús Sigurðsson á Grund. Hann hefir skrifað hr. Garðari Gíslasyni stórkaupm. allrækilegt bréf um þessi baðlyf og farið um þau mjög lofsamlegum orðum. Hann tilgreinir þar, að hann hafi nú baðað fé sitt árl. í 30 ár, og reynt mörg baðlyf, en ekkert betra, en hin svo nefndu Coopersbaðlyf.

Eg álít það því mjög æskilegt, ef stjórnin sæi sér fært að heimila Coopers baðlyf. Eg veit ekki, hvort svo er, en tillagan fer ekki fram á annað, en að hún gjöri það, ef hún sér sér það fært.

Eg sé ekki, að þeim, sem nú selja þessar tegundir, sem leyft er að nota, sé nokkur óréttur gjör með því, þótt heimilað sé að selja og nota einnig þessa líka.

Það má búast við, að margir fjáreigendur eigi nokkuð af þessum baðlyfjum afgangs frá fyrra ári, og er hart, ef ekki mætti nota þau, en það er vafasamt, ef þau eru ekki í tölu hinna lögleyfðu lyfja.

Eg vildi óska, að stjórnin tæki vel í þetta, og gerði það sem hún sæi sér fært til þess að verða við þessu, án þess að hún á hinn bóginn sé skylduð til þess, ef það getur ekki orðið með góðu móti.