05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í B-deild Alþingistíðinda. (1167)
95. mál, grasbýli
Framsögum. (Pétur Jónsson):
Eg vil biðja hv. deild að athuga það, að á 1. bls. nefndarálitsins í grasbýlamálinu, í neðstu línu, hafa fallið úr 4 orð, og fleiri smávillur hefi eg fundið.
Það er óþarfi fyrir mig að ræða mikið um þetta mál, því að nefndin í grasbýlamálinu leggur fram álit sitt í rækilegu nefndaráliti, og eg hefi litlu við það að bæta.
Nefndarálitið ber það með sér, að þótt nefndin hafi ekki getað fallist á, að grasbýlafrumvarpið gengi fram á þessu þingi, þá er það ekki af því, að nefndin sé ekki grasbýlamálinu hlynt. Nefndin er öll á einu máli um það, að grasbýlamálið sé eitt hið þýðingarmesta mál, sem sjálfsagt er að gefa rækilega gaum. Vér höfum því lagt áherzlu á, að glöggva hugmyndir manna á grasbýlum sem bezt, og á málinu yfir höfuð.
Nefndin væntir þess, að þingsályktunartillagan verði samþykt, og stjórnin taki hana til alvarlegrar meðferðar. Ef hún verður samþykt, sem eg býst við, þá hefir flutningsm. (J. E.) lýst yfir því, að hann mundi taka frumv. aftur.
Eg skal aðeins geta þess, að þar sem stjórninni er í tillögunni ætlað að afla nákvæmra skýrslna um grasbýli, þá mun henni ekki veita það svo örðugt; til þess getur stjórnin haft aðstoð hagstofunnar, búnaðarfélags Íslands og búnaðarsambandanna, sem eg tel víst, að verði fús til að veita liðsinni. Eg býst við, að hverri hreppsnefnd muni verða sendar fyrirspurnir, og ber það traust til hreppanefndanna, að þær svari vel og greiðlega, að minsta kosti þar sem mörg grasbýli eru, því að þar mun málið þykja mest um vert.
Að svo mæltu vænti eg þess, að tillagan gangi fram.