07.08.1914
Neðri deild: 37. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)

70. mál, afnám eftirlauna

Sigurður Sigurðsson ; Eg hefi leyft mér að koma fram með br.till. á þskj. 317 við þingsályktunartillöguna eins og hún kom frá efri deild. Þingsályktunartillaga efri deildar fer því fram, að skipuð verði 5 manna milliþinganefnd til þess að íhuga óskir þjóðarinnar um afnám eftirlauna, en jafnframt á hún að rannsaka launakjör embættismanna og annara starfsmanna þjóðarinnar og koma fram með tillögur þar að lútandi. Og þær tillögur miða vitanlega að því að hækka launin. Það stendur reyndar ekki í þingsályktunartillögunni, en því bæti eg við. Aftur á móti fer breyt.till. mín fram á, að fela stjórninni að íhuga rækilega óskir þjóðarinnar um afnám lögákveðinna eftirlauna og leggja fyrir Alþingi frumv. um það. Af þessu sjá menn, að það er töluverður munur á minni tillögu og aðaltillögunni. Hún felur í sér áskorun um milliþinganefnd, sem altaf hlýtur að kosta meira eða minna, til þess, að rannsaka launakjör embættismanna, jafna þau og hækka. En mín tillaga fer aðeins fram á að fela stjórninni að undirbúa frv. um afnám eftirlauna.

Á síðasta þingi kom fram frumvarp um að hækka laun embættismanna, sem að vísu féll þá, en þess var þá getið af hálfu stjórnarinnar, að von væri á frumv. til gagngerðrar endurskoðunar á launalögunum. Eftir þeim ummælum stjórnarinnar skildi eg það svo, að hún áliti sér fært að taka þetta mál til athugunar án milliþinganefndar.

Þegar um það er að ræða, að jafna laun embættismanna, þá leiðir það til þess, eins og eg sagði áðan, að þau verða hækkuð alment. En þegar talað er um að hækka launin, er altaf vitnað í það, að nú sé miklu dýrara að lifa heldur en þegar launin vóru ákveðin. Þetta er mikið rétt, en þessi aukni kostnaður við að framfleyta lífinu, kemur niður á fleiri mönnum heldur en hinum launuðu embættismönnum. Þess ber einnig að gæta, að þegar hækkuð eru laun embættismanna., þá er reglan sú, að það kemur strax í framkvæmd. En þó að eftirlaun yrði afnumin, þá kemur það ekki til framkvæmda fyrr en um leið og þeir embættismenn deyja, sem hafa eftirlaunarétt þegar lögin komast á. Ef þingsályktunartillaga þessi nær fram að ganga, verður því fyrst um sinn um aukinn kostnað að ræða, en ekki sparnað.

Það hefir altaf verið sagt, að ef hróflað yrði við eftirlaunaspursmálinu þannig, að þau yrði afnumin, þá hlyti að leiða af því samtímis hækkun á launum embættismanna. Með öðrum orðum aukin útgjöld fyrir landssjóðinn. En óskir þjóðarinnar hafa ekki beinzt í þessa átt. Þjóðin hefir aðeins æskt þess, að eftirlaunin yrði afnumin, eða öðru skipulagi komið á þau, en ekki að launin yrði hækkuð. Þessar óskir hafa stafað af óánægju manna yfir því, að sérstakri stétt í landinu væri með eftirlaunaákvæðunum veitt löghelguð sérréttindi fram yfir aðrar stéttir, og við það hefir skapast misrétti, sem menn una illa við og vilja því að eftirlaunin verði afnumin. Það óskar enginn þess, að embættismennirnir fari á vonarvöl, og því hafa ýmsar raddir heyrst í þá átt, að eftirlaunaskipulaginu væri breytt til þess að tryggja það, að til þess kæmi ekki. Eg tek undir það, því að eg óska þess, að hvorki embættismenn eða aðrir þurfi að líða nauð í ellinni, enda er sú stefna nú uppi bæði hér á landi og víða annarsstaðar í heiminum, að allir menn tryggi sér einhvern lífeyri í elli sinni. Það hefir verið stofnaður almennur ellistyrktarsjóður sem er fögur hugsjón, og eru slíkir sjóðir að ryðja sér meir og meir til rúms.

Embættismennirnir verða sjálfir að tryggja sér lífeyri, en auðvitað er ekkert á móti því, að landssjóður hlaupi að einhverju leyti undir bagga með þeim, líkt og á sér stað með alþýðuellistyrktarsjóðina. En núverandi lögskipuð eftirlaun embættismanna, eða fyrirkomulag þeirra, er ranglátt og því þarf að breyta. En til þess að breyta því og laga það, get eg ekki séð, að þörf sé á milliþinganefnd. Stjórninni ætti ekki að vera það ofvaxið, að undirbúa málið, ef ekki fyrir næsta þing, þá fyrir þingið 1917.

Eftirlaunin eru nú miðuð við embættisþjónustuár annarsvegar, og hinsvegar við launaupphæð embættisins. Þetta er bæði ranglátt gagnvart þjóðinni og embættismönnunum sjálfum. Það er eðlilegast, að upphæðin sé miðuð aðeins við þjónustuárin en ekki við launin. Allir vita það, að lægra launuð embættin eru oft jafnerfið og erfiðari en hin. Það er því afarranglátt, að þeir menn, sem sitja á þeirri grænu grein í lífinu — hafa lítið að starfa en há laun, njóti hærri eftirlauna en hinir, sem meira hafa að gera og lakara eru launaðir.

Eins og eg hefi tekið fram, álít eg milliþinganefnd óþarfa. Það hafa engar óskir komið fram um það frá þjóðinni, að endurskoða launakjör embættismanna. Og sé því spursmáli haldið utan við málið, þá sé eg enga þörf á milliþinganefnd. Ennfremur mundi það auka útgjöld landssjóðs eigi alllítið. Eg get ekki nefnt tölur. En svo mikið er víst, að hinar seinni milliþinganefndir, er skipaðar hafa verið, hafa kostað mikið. Eg hefi ekki haft tækifæri til þess að kynna mér, hvað þær hafa kostað. Eg skrifaði til stjórnarráðsins og bað það um upplýsingar í þessu efni, en hefi ekkert svar fengið. Ber þó stjórninni að sjálfsögðu sú skylda, að gefa þinginu og einstökum þingmönnum þær upplýsingar, er óskað er eftir. Annars veit eg ekki, hvort þetta stafar af hreinni og beinni ókurteisi gagnvart mér, eða að þarna liggur einhver fiskur undir steini, eitthvað sem ekki má vitnast. Nú hefir háttv. samþingismaður minn (E. A.) borið fram fyrirspurn til ráðherra um kostnaðinn við fánanefndina, og verður fróðlegt að heyra um hann.

Eg vænti nú þess, að br.till. mín á þskj. 317 verði samþykt. Hún fer ekki fram á annað en það, að athugað sé eftirlaunamálið án þess að nokkur milliþinganefnd sé sett. Það er eina og eg hefi margtekið fram, alveg óþarft, enda hætt við, að hún yrði ef til vill skipuð þeim mönnum, sem mesta hagsmuni hafa af því, að laun embættismanna verði hækkuð.

Að endingu vil eg biðja háttv. þm. að athuga það, að verði br.till. á þskj. 317 feld, þá er varatill. á þskj. 367, þar sem stungið er upp á, að tala nefndarmanna sé 3 í stað 5. Eg vænti þess, að aðaltill. verði samþykt, en að öðrum kosti varatillagan, því að betri er hálfur skaði en allur.