20.07.1914
Neðri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í B-deild Alþingistíðinda. (118)
59. mál, atvinna og vélgæsla
Björn Kristjánsson:
Eg á örlitla breytingartillögu við þetta frumv. á þgskj. 139. Hún fer fram á það, að járnsmiðir, sem lært hafa erlendis, komist inn undir lögin, en samkvæmt 3. gr. frumv. eru þeir útilokaðir. Það er vitanlegt, að margir menn læra járnsmíði erlendis. Eg veit um einn mann, sem stundað hefir nám við Flydedokken í Kaupmannahöfn í 5 ár; hann hefir auk þess tekið fyrra hluta prófa í vélfræði og ætlar sér að taka síðara hluta prófsins. Eg vænti þess, að háttv. nefnd og deild sjái, að það nær ekki nokkurri átt að útiloka slíka menn.