12.08.1914
Neðri deild: 44. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1196 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)

129. mál, afleiðingar harðræðis

Flutn.m. (Björn Kristjánsson):

Eg þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta mál, því að tillagan felur sjálf í sér það, sem hægt er um hana að segja.

Það er alkunna, að síðasti vetur var mjög harður, og eru því margir hreppar á landinu illa staddir, þar sem fjöldi bænda hefir mist nær allan bústofn sinn.

Tillaga þessi, sem hér liggur fyrir, reisir svo sem hægt er skorður við því, að menn þurfi að eyðileggja í haust það af bústofninum, sem eftir er eftir þennan harða vetur.

Eg veit að vísu, að stjórnin hefir nú á tímum ekki úr miklu fé að spila, svo að hún getur sennilega ekki orðið við þessari áskorun, en fyrir gæti það komið, að stjórnin gæti fengið fé, og því viljum vér flutningam. tillögunnar láta liggja fyrir heimild til að veita þeim mönnum lán, sem verst eru staddir.

Eg vona, að háttv. deild lofi þessari tillögu að sigla sinn sjó í gegnum deildina, svo að landsstjórnin hafi þó heimild til að lána, ef landssjóður getur.