12.08.1914
Neðri deild: 44. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (1195)
129. mál, afleiðingar harðræðis
Bjarni Jónsson:
Snemma á þingi buðust menn til þess úr Sjálfstæðisflokknum og bændaflokknum að athuga, hvað gera mætti þeim til hjálpar, sem orðið hafa fyrir mestum skaða í harðindunum í vor. Það er þessi nefnd, eða sjálfboðaliðar, sem hv. 1. þm. Árn. (S. S.) var að tala um. Eg mun greiða atkv. með tillögu þeirra, þó að vafasamt sé, að hverjum notum hún getur komið. Því að þeir viðburðir geta orðið í heiminum, að hún komi ekki að haldi, og nær það þá ekki legra. Annara er það gott að stjórnin hafi þessa heimild, ef ástæður leyfa, að hún hlaupi undir bagga.