11.08.1914
Neðri deild: 41. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)

121. mál, uppburður sérmála Íslands

Ráðherra (S. E.):

Eg stend upp út af orðum háttv. 2. þm. Rvk (J. M.). Mér skildist svo, sem hann teldi mig einan bera ábyrgðina á því, ef stjórnarekrárfrumvarpið yrði ekki staðfest með þeim fyrirvara, sem þingið kann að samþykkja. Eg hefi lýst því yfir, að eg hefði þá von, að H. h. konungurinn mundi staðfesta frumvarpið með hyggnum fyrirvara, eftir þeim hlýja hug, sem hann ber til Íslands. Víst hefi eg aldrei talið það. Og eftir svo ótvíræða yfirlýsing álít eg, að þingið beri líka með mér ábyrgð á fyrirvaranum og afdrifum stjórnarskrárfrv.