11.08.1914
Neðri deild: 41. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1219)

121. mál, uppburður sérmála Íslands

Einar Jónson:

Eg hafði ætlað mér að falla frá orðinu, ef aðrir hefði gert hið sama, og umræðurnar hefði þar með hætt. Þær eru orðnar sæmilega langar, og skal eg ekki tefja tímann lengi.

Mér dettur í hug að spyrja, hversvegna hinn nývaldi ráðherra var ekki látinn hafa einhvern fyrirvara í höndum þegar hann fór á konungsfund, til þess að hann hefði getað frætt oss eitthvað þegar hann kom aftur. Hér er verið að þræta um fyrirvarann, og vér vöðum í villu og svima um það, hvernig eigi að semja hann, til þess að hann verði ekki stjórnarakrármálinu að falli. Mér datt í hug, að sá flokkur, sem valdi hinn nýkosna ráðherra, hefði ætlað honum að leita undirtekta konungs, ekki einungis um einhvern fyrirvara, heldur og um fánamálið og ef til vill fleira, til þess að, vita hvað þingið mætti bjóða sér í þessum málum. En hvert var erindi ráðherrans til konungs? Var það nauðsynlegt fyrir hann að fara á konungsfund til þess að fá undirskrifað útnefningu sína? Mátti ekki segja

konungi, að hann færi ekki? Það hefir áður átt sér stað, að ráðherra hefir verið útnefndur gegnum síma á konungsábyrgð.

Eg álít eins og fleiri, að fyrirvarinn á þskj. 455 sé svo hættulegur fyrir framgang málsins, að það sé ekkert viðlit að samþykkja hann. Um hinar tillögurnar finst mér standa á sama, hver verði samþykt, því að þær eru sama efnis, þótt orðalagið sé annað. Mér er það kunnugt, að úti um land hafa ýmsir þingmenn, sem hér eiga sæti nú, heitið kjósendum sínum að vera hlyntir einhverjum fyrirvara, en mér er það líka kunnugt, að sumir hafa ekki álitið þess neina þörf. Það er ekki nema eðlilegt að þeir menn, sem hafa lofað kjósendum sínum að samþykkja ekki stjórnarskrána án fyrirvara. og þá einkannlega þeir, sem hafa skrifað strangar greinar í blöðin um það, að fyrirvari yrði gerður, vilji nú samþykkja einhvern fyrirvara.

Eg býst varla við að fá svör við spurningum mínum, en eg hefi þó viljað setja þær fram. Utanför ráðherra var þannig úr garði gerð, að hún sýnist ekki hafa orðið til neins gagns. Hann hrósaði konungi fyrir vinsamleg ummæli í garð þjóðarinnar, en sagði að konungur gæti ekkert sagt um fyrirvarann fyrr en hann sæi, hvernig hann yrði. Eg get þakkað hæstv. ráðherra fyrir ummæli hans um stjórnarskrármálið, að hann vill leggja því máli lið sitt og leggja kapp á að fá það staðfest og standa eða falla með því.

Eg skal svo ekki segja meira, því að fundurinn er þegar orðinn langur, og það er leiðinlegt að hlusta á langar ræður, jafnvel þó að ræður þeirra, sem lengst tala, kunni að vera skynsamlegri heldur en ræður hinna, sem tala styttra.