04.08.1914
Neðri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (1244)

85. mál, brúargerð á Langá

Jón Jónsson:

Eg býst við, að sú fjárveiting, sem þessi tillaga fer fram á, sé sanngjörn, eins og fleiri útgjöld sem fram á er farið á þessu þingi, en ekki ná fram að ganga. Eg skal ekki segja, hvað rétt hefði verið að gera í þessu efni, ef þessi ráðstöfun hefði getað talist sanngjörn gagnvart Stykkishólmsveginum. En eg verð að álíta, að það sé nokkuð djarft að taka af fé því, sem þingið hefir áður veitt annarri sýslu og byggja fyrir það þessa brú. Það held eg, að geti alls ekki komið til mála. Enda hefir nú háttv. þm. Snæf. (S. G.) komið fram með tillögu um, að þó að fé verði veitt til brúarinnar, þá verði fjárveitingin til Stykkishólmsvegarins látin óskert. Þetta verð eg að telja sjálfsagt, en jafnframt verð eg að leggja til, að tillaga háttv. þm. Mýr. (J. E.) verði feld. Eg vona, að hann virði mér þessar undirtektir til betri vegar, því að fyrir mér vakir ekkert annað en sparnaðurinn; að öðru leyti játa eg, að tillaga hans hefir mikið til síns máls.