12.08.1914
Neðri deild: 44. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)

117. mál, kostnaður við starf fánanefndar

Hannes Hafstein:

Hv. þm. N.Þing- (B. Sv.) endurtók það, að nefndin hefði ekkert gjört til þess að kynna sér óskir almennings um fánagerðina. Þetta er alls ekki rétt. Hún skrifaði í allar áttir, gaf þegar út auglýsingar, þar sem hún óskaði þess, að sem allra flestir léti hana vita tillögur sínar og óskir um það efni. Og henni barst líka aragrúi af slíkum tillögum úr öllum áttum.

Að fara að leggja spurningar eða tillögur um þetta fyrir þingmálafundi hefði verið alveg árangurslaust. Það er alveg óhugsandi, að slík aðferð hefði skýrt hugmyndirnar, eða greitt fyrir samkomulagi, einkum þar sem svo stóð á, að gerð sú, sem í seinni tíð hefir verið notuð á svo nefndum íslenzkum fána, gat ekki komið til greina, án þess tök væri á að gera fulla grein fyrir ástæðunum til þess á hverjum þingmálafundi.

Úr því, að eg mintist á þessa gömlu gerð, þá vil eg geta þess, að það er alls ekki rétt hjá hv. þm. N.-Þing. (B. Sv.), að þjóðkunnugt sé, að hún sé nú gerð, sem meginþorri manna hér á landi óski eftir. Fyrir því er engin sönnun. (B. Sv.: Hvað segja þingnefndirnar?) Eg álít, að það sem í nefndarálitunum er og tillögunum til þingsályktana er sagt um það atriði, sé rangt, og talað »út í bláinn«, og einmitt þess vegna get og hvorugri tillögunni greitt atkvæði mitt.

Eftir því, sem eg hefi kynst vilja manna um þetta, bæði af bréfum og viðtali, þá álít eg alveg eins líklegt, að fleiri yrði móti þeirri gerð en með, ef atkvæði væri greidd um það um land alt og það af ýmsum ástæðum.