05.08.1914
Efri deild: 32. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (1290)

30. mál, siglingalög

Karl Finnbogason:

Mjer finst það í meira lagi undarlegt, að hvað eftir annað eru menn hjer að tala um, að þingið hafi eigi tíma til þess að gjöra rjett. Hv. framsm. álítur brtt. mína til bóta, en vill þó láta fella hana, af því að svo langt sje liðið á þingtímann. Mjer er ekkert kappsmál um þessa brtt., en það vil jeg segja, að ef þingið hefir ekki tíma til að gjöra það sem það viðurkennir að sje rjett, þá væri betur að það hefði aldrei komið saman, og færi heim sem fyrst og kæmi aldrei saman.