03.08.1914
Efri deild: 30. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)
58. mál, skipströnd
Framsögum. (Steingrímur Jónsson):
Frumvarp þetta, sem komið er frá háttv. neðri deild, er stjórnarfrumvarp, sem þar var lagt fyrir deildina. Tilgangurinn með því er að bæta úr þeim galla á strandlögunum frá 14. jan. 1876, að þar er hvergi gjört ráð fyrir, hvernig fara skuli með skipsflök, sem liggja í greiðarleysi á strandfjöru löngu eftir að skipið hefir strandað, en slíkt kemur oft fyrir. Ástæðan til þess er oftast sú, að eigendurnir óska ekki aðstoðar yfirvaldanna við björgun, en síðan ekki þótt borga sig að vinna að björgun eða rífa skipið; hefir skipsflakið þá einatt legið árum saman á fjörunni í hirðuleysi. Þetta getur einnig komið fyrir í því tilfelli, að einhver kaupi skipið á stranduppboði, en þyki svo ekki svara kostnaði að rífa það, svo að skipsflakið liggur þar, sem það er komið. Þetta er óheppilegt að mörgu leyti. Það getur spilt lendingu og haft ýms önnur óþægindi í fór með sjer.
Hjer er farið fram á, að lögunum sje breytt á þá leið, að þegar liðið er ár frá því að strandið varð, geti lögreglustjóri látið selja skipið við opinbert uppboð, en ef það er ekki gjört, og skipið liggur þannig í tvö ár, þá verði það eign fjörueiganda. Undantekning er gjörð í þá átt, að lengja megi þenna frest, ef eigandi eða ábyrgðarsalar sýna stjórnarráðinu fram á, að sjerstökum erfiðleikum hafi verið bundið, að ljúka björguninni á 2 árum. Enn fremur eru ákvæði um það, ef skip sekkur, þar sem af því getur stafað hætta fyrir siglingar, þá megi stjórnarráðið gjöra ráðstafanir til þess að gjöra það óskaðvænt. Þetta ákvæði áleit nefndin sjálfsagt.
Nefndin áleit rjett, að taka það fram, að lögin gildi ekki þar sem löggiltar hafnarreglugjörðir eru fyrir hendi, svo sem í kaupstöðum og kauptúnum.
Það getur verið nauðsynlegt að hafa reglu, sem er ekki eins þunglamaleg eins og reglan í 5. gr., og það er því ósk nefndarinnar, að bætt verði við frumvarpið ákvæði um, að þessi fyrirmæli laganna haggi ekki við löggiltum reglugjörðum í kaupstöðum og kauptúnum. Vonum við að deildin verði á sama máli um, að rjett sje að bæta þessu ákvæði við frumvarpið, og leggjum það til, að frv. þannig breytt verði samþykt af háttv. deild.