03.08.1914
Efri deild: 30. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (1340)

89. mál, friðun héra

Magnús Pjetursson:

Þetta frv. er komið frá hv. Nd. eins og kunnugt er; fylgdi því þar allítarlegt nefndarálit, og mun mörgum, sem það hafa lesið, þykja hálfbroslegt, að málið skuli hingað komið, eftir slíkt nefndarálit. En svo er þó komið, og því er að taka það til skoðunar. Liggur þá beinast fyrir, þegar fara á að flytja nýja dýrategund inn í landið, að athuga, hvort meira gagn eða tjón muni verða að innflutningnum. Gagnið mun hjer ekki verða annað en það, að ef leyft verður að veiða hjerana — en það er ekki gjört hjer — þá gefur það landinu ofurlitla viðbót af kjöti til átu og kann að veita mjer og öðrum veiðimönnum nokkra veiðigleði. En líkindi eru til, að þeir gjöri allmikinn skaða á görðum og skógviði.

Ef þeir þrífast hjer á annað borð, þá má búast við að þeim fjölgi fljótt, og að erfitt muni verða að útrýma þeim úr jafnstóru og strjálbygðu landi sem Ísland er, þótt menn kæmust að þeirri niðurstöðu að það væri æskilegt. Jeg get því ekki verið með þessu frv., nema ef vera skyldi með allmiklum takmörkunum, t. d. þeim, að hjerunum væri hleypt á land í einhverjum tilteknum eyjum, svo sem Vestmannaeyjum. Hvað mundi hv. þm. Vestm. (K. E.) segja um það?

Það þykir máske ókurteisi við hv. Nd., að fella frv. nú þegar; þó hygg jeg, að þeir hv. þdm. sem hlustað hafa á umræðurnar um málið í hv. neðri deild, muni hafa sannfærst fullvel á þeim; svo er um mig, og jeg legg því til að frv. sje ekki látið halda lengra áfram.