30.07.1914
Neðri deild: 25. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (136)

89. mál, friðun héra

Einar Arnórsson:

Mér kom það ekki á óvart, að háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) talaði á móti nefndarálitinu. Nefndarálitið er hans skæðasti óvinur. Nú er eftir að vita, hvor sigur ber úr býtum, framsögumaðurinn í skrifarasætinu hér í deildinni, eða framsögumaðurinn í nefndarálitinu.

Háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) hélt fyrirlestur um héra- og kattafræði. Hann telur ilt að útrýma hérum, af því að þeir sé samlitir jörðunni. Eg býst nú við, að þá verði þeir nú eigi síður samlitir jörðinni hér en annarsstaðar, og því jafnilt eða verra að útrýma þeim hér.

Sami háttv. þm. (G. E.) segir, að hérar hafist við í kálgörðum í Danmörku, þegar þurt er, en býzt ekki við, að þeir muni sækja í kálgarða hér, af því að hundar eru á hverjum bæ. En ekki eru hundar í skógum til að varna því, að hérar nagi börkinn. Hundar eru og víst oftast lokaðir inni á nóttum, og geta þá ekki varið kálgarðana.

Ekki geri eg ráð fyrir því, að menn hafi miklar veiðinytjar eða veiðigleði af hérum á háfjöllum á sumrum. Á vetrum, þegar hart er, koma hérar til bygða, og geta þá valdið skemdum, t. d. á heyi, sem ekki er í hlöðum.