07.08.1914
Efri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (1367)
91. mál, strandgæsla
Jósef Björnsson :
Út af því að háttv. þm. Vestm. (K. E.) lýsti yfir því, að hann ætlaði að koma fram með brtt. við frv., skal jeg geta þess, að við nefndarmennirnir höfum ekki viljað bera upp neina breytingartillögu við frumvarpið, sökum þess, að við viljum ekki með nokkru móti draga málið. En við lítum svo á, að hætta væri á, að málið strandaði, ef farið væri að breyta frumvarpinu og endursenda það neðri deild. En þar sem hann sagði, að Búnaðarfjelagið hefði enga menn, sem þekkingu hefðu á þessum efnum, þá álít jeg, að þar sje tekið of djúpt í árinni. Sandgræðsla er ekki að eins skógræktarmál. Það er líka jarðræktarmál, þótt það sje nokkuð sjerstaks eðlis. Og með engu móti er hægt að neita því, að hefting sandfoks sje búnaðarmál. Jeg tel því jafn frek ummæli og háttv. þm. Vestm. (K. E.) mælti í garð Búnaðarfjelags Íslands óviðeigandi. Jeg verð að líta svo á, að ef Búnaðarfjelag Íslands hefir ekki menn í þjónustu sinni, sem eru nógu vel að sjer í þeim störfum, er til sandgræðslu heyra, þá geti það tekið í sína þjónustu menn, sem hafa slíka þekking og kunnáttu. Og þetta þarf væntanlega ekki að brýna fyrir fjelagi, sem er allsherjarfjelag alls landsins til eflingar búnaði á öllum sviðum. Af þessum sökum kemur nefndin ekki fram með neina breytingartillögu.
Jeg ætla ekki að ræða hjer um heftingu sandfoks, en það er víst, að það má hefta það á ýmsa vegu. En jeg get tekið undir það með háttv. 6. kgk. (G. B.), að vatnsveitingar munu vera öruggasta ráðið, þar sem þeim verður við komið.
Nefndin segir engan veginn að skógræktarstjórinn hafi ekki vit á þessu máli og kunnáttu á störfum þeim, sem að heftingu sandsfoks lúta. Um það lætur hún engan efa í ljósi, þótt hún komi ekki fram með breytingartillögu um að fela honum það til umsjónar, og telji sjálfsagt að málinu ætli að vera borgið, þó það sje lagt undir Búnaðarfjelagið.