20.07.1914
Efri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)
38. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Steingrímur Jónsson :
Það sem kom mjer til að standa upp, var ásökun sú, sem hv. þm. Barðstr. (H. Kr.) bar á deild þessa, eða meiri hluta hennar, sú ásökun, að hann hefði felt mál þetta í fyrra af einhverjum partiskum ástæðum. Jeg held að hv. þm. (H. Kr.) hafi ekki athugað það, að þessi ásökun blint út í loftið hafi ekki átt vel við. Jeg er þess fullviss, að þeir, sem atkvæði greiddu móti málinu í fyrra, hafa gjört það af alveg eins hreinum hvötum, og eftir alveg eins vandlega hugsun eins og hv. þm. (H. Kr.) greiddi atkv. með því, en auðvitað má deila um það, hvort þeir hafa haft jafngott vit á því sem hv. þm. (H. Kr.) En víst var nægur tími til að átta sig hjer á málinu í fyrra, þar sem nefnd var skipuð í því.
Hv. flutningsm. (H. Kr.) færði þá ástæðu fyrir málinu, að þetta væri vilji meiri hluta bæjarbúa. Jeg get ekki fallist á að full rök hafi verið færð fyrir því. (Jósef Björnsson: Það var sannað). Getur verið að það sje sannað nú, þá var það ekki. En þótt þetta sje vilji meiri hluta kjósenda, þá hefir það ekki áhrif á sannfæringu mína. Jeg fæ ekki betur sjeð en að breyting sú, sem hjer er farið fram á, komi í bág við fyrirkomulagið, eins og það er nú. Borgarstjórinn á að vera verkamaður bæjarstjórnarinnar, og á að framkvæma það, sem hún leggur fyrir hann. Það virðist því langeðlilegast, að bæjarstjórnin sjálf velji þennan framkvæmdarstjóra sinn.
Önnur ástæða gegn frv. tel jeg sje sú, að það liggur í augum uppi, að með því að gjöra frv. þetta að lögum, er borgarstjórakosningin gjörð pólitísk; en það vona jeg að hv. flutnm. (H. Kr.) telji óheppilegt, og vilji ekki stuðla til þess að svo fari. Þetta, sem jeg nú hefi tekið fram, gjörir það að verkum, að jeg álít frv. óheppilegt og að það eigi ekki að fá framgang.