24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (1422)
38. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Guðmundur Björnsson :
Hjer er enn á ný farið fram á að taka borgarstjórakosninguna í Rvík út úr bæjarstjórninni og hleypa því vandamáli bæjarins út í óvissuna, undir atkvæði allra kjósenda, þó að engum geti dulist, að miklum meirihluta allra kjósenda getur aldrei verið eins kunnugt um þarfir bæjarins og ætlunarverk borgarstjóra eins og bæjarfulltrúunum, sem vinna í sífellu að öllum vandamálum bæjarins; og borgarstjórinn er þeirra framkvæmdarstjóri, líkt og ráðherrann andspænis Alþingi.
En þessi strekkingur gengur nú hjer á þingi ár eftir ár, og er síst fjarri sanni, að segja um þann gust, að „enginn veit hvaðan hann kemur, eða hvert hann fer“.
Menn halda víst allir, að þessi stroka standi innan úr Skuggahverfi, ofan úr Þingholtum og utan úr Ánanaustum — að bæjarmenn hafi fundið þetta upp sjálfir.
En það er ekki kollgátan, Þessi vindblika er lengst úti í hafsauga, lengra en auga eygir. Það var fyrir 7 árum, þegar borgarstjórinn kom til, þá sögðu nokkurir ákafamenn, jeg og nokkurir aðrir bæjarbúar, að það væri siður í frjálsustu löndum, að öll alþýða kysi í bæjum borgarstjóra sinn, og svona ættum við að hafa það og óðara kvað við úr öllum hverfum bæjarins: „Já, vitanlega, svona eigum við að hafa það, kjósa hann sjálfir; þeim er aldrei trúandi til þess í bæjarstjórninni“.
Þetta voru upptökin. Kenningin er aðflutt. Hún fjell strax í faðminn á þeirri heimskunnu ástríðu allra kjósenda, að hver þeirra trúir sjálfum sjer til alls, en fulltrúum sínum aldrei til neins.
Jeg var einn af þeim, sem krafðist þess í fyrstu, að við kjósendur veldum sjálfir borgarstjórann — heimtaði það eins og aðrir, án nánari íhugunar; það vantaði ekki, að því væri laumað að mjer hjerna í fyrra. En jeg sagði þá, og segi það enn og aftur, jeg kann að skammast mín fyrir sjálfum mjer, ef jeg gjöri glappaskot. Síðan jeg vitkaðist hefi jeg átt í því látlausa skynsemisstriði, að lagfæra og umbæta skoðanir mínar. Jeg á ekki því láni að fagna, að vera skynlaus eins og skepna, eða sáluhólpinn í blindri trú á það, sem allir segja og allir vilja, eins — eins og þeir, sem það eru.
Og því fór nú svo: Við nánari íhugun sá jeg, að mjer hafði skjátlast í þessu borgarstjóramáli — sá, að sterk rök mæltu með því, að bæjarstjórn veldi manninn. Og mjög margir bæjarbúar eru nú sama sinnis — ánægðir með það sem er. En það má vel vera að hinir sjeu fleiri, kann ske miklu fleiri, sem hafa ekki enn hugsað þetta vandlega, og lifa enn í trúnni á sjálfa sig í þessu máli, eins og mörgum öðrum.
Jeg á hjer við þá nýju alheimstrú, sem við allir játum meira eða minna, tröllatrú allra kjósenda á ráðdeild sína og alvisku andspænis glópsku og djöfulskap allra, sem þeir sjálfir kjósa úr sínum hóp og fyrir sína hönd, — hvort heldur er í sveitarstjórn, bæjarstjórn eða á þjóðarþing.
Þessi mikla trú kjósenda á mátt sinn og megin er alls engin hjegilja, hún er bygð á fullum rökum reynslunnar, þjóðræðisreynslunnar; annars væri hún ekki orðin að alheimsátrúnaði. Í æsku þjóðræðisins hugsuðu kjósendur með fögnuði til þess að mega kjósa sjálfir bestu menn til að ráða fyrirsig. Þessi fögnuður brýst út í fegurstu kvæðum Jónasar Hallgrímssonar og annara góðskálda vorra á þeim tímum. En ef vjer fengjum gjörskoðað huga nútíðarmanna, mundum vjer sjá fagnaðarblæ þennan skugga hjúpaðan hjá flestum. Kjósendur hafa hvekst illilega, hvergi megnað að vara sig á misendismönnum, sem lofa öllu fögru fyrir kosningar, en pretta þá á eftir. Þessi ófögnuður hefir ágjörst um allan heim, og jafnframt tortryggni kjósendanna. Og þess vegna eru nú kjósendur komnir á þá trú, að það sje langhollast, að þeir ráði sem flestu sjálfir, en kjósi ekki fulltrúa til þess. Og þess vegna er það nú vísasti vegurinn til kjósendafylgis, að dekra við þetta sjálfstraust kjósendanna.
Í þessum undarlega, nýja átrúnaði á kjósendavisku er nú að vísu alveg ótvírætt fólgin mikill sannreyndur vísdómur, — en líka, jafnótvírætt, ýmisskonar bagaleg ofstæki og margtíðar meinlegar sjervillur.
En hver veit? — Hver veit nema kjósendadýrkunin sje rjettmæt hjer í þessu frumvarpi, og ekki hjátrú, eins og jeg held?
Á því veltur nú frumvarpið, herra forseti, og úr því verður nú að skera ekki með tilbeiðslutali um vilja kjósenda, heldur með rólegri skynsemisrannsókn.
Gjörum þá fyrst að allir kjósendur velji borgarstjórann.
Öll okkar reynsla, og eins í öðrum löndum, sannar ótvírætt, að þá mundi fara um borgarstjórakosninguna alveg eins og þingkosningarnar hjer í bæ, verða gálaust metnaðarmál milli þjóðmálaflokkanna, og hverju drösulmenni staðan vís, ef sterkari flokkurinn hampar honum, alveg eins þótt annar væri í boði og hann manna hæfastur — í stöðuna. Þetta er ekki glæsileg tilhugsun.
Af því mundi svo brátt leiða, að bestu menn yrðu tregir til, tregari og tregari að gefa sig út í þetta gráa gaman, þennan illindaleik.
Þegar lukkan væri með og meiri hlutinn — sá almáttugi, alvitri meiri hluti slampaðist á góðan mann í sínum hóp til að spreyta sig á, þá er þó altaf eftir þriðji stóri ókosturinn. Þessi bæjarbúakosning leiðir hvern borgarstjóra með harðri hendi út á hrösunarveg hlutdrægninnar, að ívilna sínum flokksbræðrum úr góðu hófi og meta oft vinsældir fjöldans af kjósendum sínum fram yfir heill bæjarfjelagsins í bráð og lengd.
Þetta eru engir smáræðis ókostir, að eiga víst að valið milli manna muni oft mistakast hörmulega, og eiga svo einlægt það á hættu, að borgarstjóri breyti í mörgu á móti sannfæringu sinni og betri vitund — til að brjóta ekki af sjer fylgi kjósendafjöldans.
Þá er á hitt að líta, ef bæjarstjórn velur borgarstjóra.
Alþingi er stundum í gamni kallað þjóðarskútan, og ekki svo illa til fundið; við erum þá hásetarnir; en bæjafulltrúarnir þá líka alveg eins hásetar á bæjarskipinu. En eigi hásetar sjálfir að velja sjer skipstjóra, og á ýmsum er völ, þá er víst, að þeir gæta sín miklu betur en allir hinir, sem sitja í landi og eiga ekki í vosinu, ef þeir veldu manninn.
Í bæjarstjórninni getur steinblint flokksfylgi aldrei ráðið líkt því eins miklu og á kjörþingi allra kjósenda, þar sem enginn veit hvað kjósandinn gjörir svo að hann hefir ekki minsta aðhald af umhugsun um rjettmætar ákúrur annara manna, þó hann fari gálauslega með kosningarrjett sinn. En bæjarfulltrúarnir, örfáir menn, sem allir þekkja, ef þeir kjósa, þá er alt annað; þeir standa þá allir sem einn í augsýn allra bæjarbúa með allan ábyrgðarþungann af kosningunni á herðum sjer.
Jeg get vel skilið, að þeim sje ekki óljúft að losna undan þeirri byrði.
Þetta er feiknamunur.
Þar við bætist annað, sem mjög margir gætnir bæjarbúar hafa á orði. Það er víst, að margur vitur maður mundi ófáanlegur, ef allir ættu að kjósa, þó að hann hefði hug á starfinu og myndi sækja um það, ef bæjarstjórn veitti.
Þá er það þriðja, að borgarstjóri, sem bæjarstjórn kýs, er svo margfalt frjálsari fyrir þeirri skaðsemdar-freistingu, að gjöra hin og þessi vísvitandi glappaskot — ,,fyrir flokkinn“ — eða „af því að það er vilji kjósendanna“.
Ef skynsemin, frjáls og heilbrigð skynsemi, á að dæma í milli, þá dæmist rjett að vera, að breytingartillagan á þgskj. 182 á fram að ganga.
Nú má að vísu vjefengja þennan dóm skynseminnar og færa til að hann sje ekki bygður á fullri reynslu hjer á landi.
En — hæstv. forseti! — má jeg spyrja: Er þetta frumvarp bygt á reynslu, íslenskri reynslu? — Jeg segi: nei! engri reynslu, og alls ekki í samræmi við íslenskar venjur. Gáum að: Ekki eru það lög, að hreppsbúar kjósi oddvita sinn, það gjöra hreppsnefndir. Ekki kjósa sýslubúar framkvæmdarstjóra sýslumála — hann er konungkjörinn. Og svo er nú rothöggið á þennan uppvakning. Ekki velur þjóðin öll framkvæmdarstjóra þjóðfjelagsins — ráðherrann; það gjörir nú þingið með samþykki konungs. Annað hvort er nú að fótumtroða öll augljós sannindi, ella játa, að þjóðin á miklu meira undir ráðherranum og hann miklu meira vald yfir málefnum þjóðarinnar en borgarstjóri að sínu leyti yfir bæjarmálum og bæjarbúar undir honum.
Reynslurökin eru því engin til, en ósamræmin afskapleg, ef litið er yfir land og þjóð.
En þar fyrir getur vel verið, að stækustu forvígismenn frumvarpsins hjer á þinginu sjeu ekki eins og fólk er flest, sjeu sjálfum sjer samkvæmir. Það væri bót í máli fyrir þá, en sú bót er víst, eins og botninn sæti uppi í Borgarfirði — þeir eru bótalausir, það skín í bera mótsögn margs fylgismanns frumvarpsins við sjálfan sig þessi glundroði blasir við manni um þessar mundir — miklu oftar en sumarsólin. Það eru eiginlega ekkert skemtileg skifti.
Þeir þingmenn, sem fylgja svo fast þessu nýmæli, tala þá svo fagurlega um vilja kjósenda í Reykjavík, þeir hafa margir bæði fyr og síðar og síðast núna ýmsir fyrir fáum dögum í neðri deild talað fullum hálsi á móti því, að þeir sömu kjósendur, við Reykvíkingar, fengjum leiðrjett það gífurlega misrjetti, að hver okkar hefir ekki hálfan rjett á við aðra Íslendinga í alþingiskosningum, enda svo, að í einu kjördæmi vegur hver kjósandi móts við 7 af okkur hjer í höfuðstaðnum.
Loki menn augunum, þá er þeim óhætt, þá sjá þeir ekkert, en hver Reykvíkingur, sem opnar augu sín, hlýtur að sjá slíkt grand í mat sínum — þó minna væri en þessi ósköp.
Herra forseti! Jeg hefi brýnt það fyrir öllum, sem jeg hefi kent eitthvað, fyrst og síðast allra orða, að gá vel að öllum hlutum, taka vandlega eftir hverju, sem fyrir ber. Enginn veit af því að segja, sem hann veitir enga eftirtekt, gáir ekkert að
Ef forvígismenn þessa frumvarps litu betur í kring um sig, þá mundi þeim ekki dyljast, að sje það rjett, að Reykvíkingargjöri lang best í að kjósa, allir kjósendur, borgarstjórann, þá er enn augljósari sú nauðsyn, að allir landsmenn fái að kjósa landsstjórann — ráðherrann.
Hjer urðu ráðherraskifti, skamt til að minnast; ekki rjeðu allir kjósendur þar þingið rjeð, og ekki allir 40 þingmennirnir, nei, nei; blaðið, sem heitir í höfuðið á vilja kjósendanna, það segir að einir 13 þingmenn hafi gjört útslagið og hefir ekkert út á það að setja.
Herra forseti! Jeg meina ekki að þetta sem jeg sagði síðast, sje ámælisvert; jeg segi ekki að það sje skakt. En það segi jeg fullum fetum, að þessir viðburðir hjer á þingi, sem jeg nefndi, þeir draga allan gjörsamlega allan sannfæringarmátt úr orðum þeirra manna, sem eru að mæla með þessu frumvarpi, svona löguðu; þess vegna leyfi jeg mjer ekki að efast um, að breytingartillaga mín og háttv. 5. kgk. verði samþykt.
En jeg get ekki skilist svo við öll þessi beryrði mín; mig skal síst furða þó einhver taki þau óstint upp og gjaldi í stærri mynt, og það er hverjum frjálst fyrir mjer
En jeg bið yður, herra forseti, minnast þess, að jeg hefi ekki talað eitt, ekki hálft orð í þá átt, að saka þingbræður mína um vísvitandi rangsleitni eða kærulausa breytni. móti betri vitund í þessu máli eða öðrum. Það hefi jeg alls ekki sagt eða í huga haft.
Og nú kem jeg að því, sem mjer finst mest um vert; jeg segi það skýrt og skorinort. Þetta frumvarp er undurljóst dæmi og talandi vottur um háskasemi þeirrar hjátrúar, sem er að verða að þjóðtrú hjer á þingi, jeg á við það ofstæki, þá villukenningu, að alþýða manna sje óskeikul og þess vegna þjóðheilög skylda hvers þingmanns að hlýða öllum boðum kjósendanna, ekki síður — ef ekki betur en þeim gömlu og góðu Mósesboðorðum; — þetta kveður nú við sýknt og heilagt af vörum marga þingmanna með sannfæringarinnar fulla krafti, þetta, að yfirlýstur vilji kjósendanna eigi að ráða, hvernig sem hann nú kann að vera tilkominn; honum til dýrðar verði fulltrúarnir að afneita öllum skynsamlegum ástæðum, sem móti standa, og takist að ekki, þá hiklaust leggja sannfæringu sina í sölurnar.
Þetta er að verða vana-viðburður, að skýrar, skynsamlegar ástæður falla eins og strá fyrir þessum nýja beitta ljá.
Einn háttv. þm., heiðarlegur og góður maður, játaði einu sinni í fyrra, skýrt og afdráttarlaust, þessa efalausu trú á fullveldi og fullvisku kjósendaviljans; hann hafnaði þá einu sinni óhrekjandi mótmælum og talaði rjett á þessa leið: „Mjer er alveg sama, hvað haft er á móti þessu –jeg veit það fyrir víst að þjóðin vill það — og það er mjer nóg.
Herra forseti! Þetta frumvarp er ekki í sjálfu sjer neitt verulegt stórmál, en þetta, að það er nú aftur komið hingað í háttv. deild, það er stórfeld sönnun fyrir því, að þessi blinda trú á vilja kjósendanna er varasöm, og þessi sívaxandi tillátssemi og undirgefni hjer á þingi undir hvers konar nýjar kröfur kjósendanna, að þær eru þinginu til rýrðar, og þá líka til hnekkis farsæld þjóðarinnar í bráð og lengd.
Jeg vona að þingsetu minni verði lokið að hálfum mánuði liðnum og jeg verði fyrir því, sem síst er öfundsvert, að reka lestina, síðasti maður af þeim illa þokkuðu konungkjörnu þingmönnum.
Og þess vegna er ekki seinna vænna fyrir mig að gjöra grein fyrir skoðun minni — eins og áður var títt á þingi, áður en skoðun kjósenda steypti skoðun þingmannsins af stóli.
Og jeg vona líka, herra forseti, að það muni engum dyljast, að mjer er þetta full alvara, og þetta erindi mitt harla óvænlegt til vinsælda, ef jeg reyndi á fylgi einhverra kjósenda á komandi ári.
Það eitt hlæir mig, að sje nokkur sá hjer, sem ætlar að samborgarar mínir uppi á áheyrendapöllunum muni kasta steinum á mig, þegar út kemur á götuna; þá þekkir hann illa mannkosti Reykvíkinga. Reykvíkinga þekkir víst enginn betur hjer á þingi en jeg. Þess vegna sárnar mjer það ávalt, meir og meir, þegar verið er á ýmsan hátt að niðra þeim og setja þá skör lægra en aðra Íslendinga. Þess vegna gremst mjer það herfilega misrjetti, sem þeir eru beittir í alþingiskosningum. Þess vegna veit jeg líka að þinginu tekst ekki til lengdar að fela fyrir þeim það gífurlega misrjetti með sífeldu dekri við þetta vanhugsaða nýmæli þeirra. Það er nú um 20 ár síðan jeg settist hjer að, og jeg hefi átt í mörgum brösum við samborgara mína, iðulega gengið í berhögg við skoðanir þeirra og álit; en þess hefir mig aldrei iðrað og þeir aldrei, að jeg held, metið mig til muna minni mann eftir en áður.
Jeg er, satt að segja, orðinn dauðleiður á þessum gamla stóradóm, sem nú nær engri átt, að Reykvíkingar sjeu lökustu Íslendingarnir — megi ekki einu sinni njóta jafnrjettis á við aðra landsmenn í þeim kosningum, sem mestu varðar alla landsbúa.
Það misrjetti þoli jeg ekki lengur mótmælalaust, herra forseti jeg þori að fullyrða, að jeg þekki nú þjóðina í heild sinni á við hvern annan, og miklu betur en margir fylgismenn þessa frumvarps.
Og það er mín fulla sannfæring, að Reykvíkingar eru nú um stundir ekki lakasti hluti þjóðarinnar, heldur sá hlutinn, sem fram úr skarar að sívaxandi dáð og dugnaði.
Jeg trúi statt og stöðugt, eftir 20 ára reynslu, á framtíð þessa bæjar og sívaxandi framtakssemi Reykvíkinga, djörfung og dugnað, til farsældar fyrir fósturjörð okkar.
En jeg læt aldrei, herra forseti, leiða mig til að trúa því, að kjósendur hjer í bæ sjeu óskeikulir, það eru þeir ekki fremur en aðrir kjósendur, og mjer dettur ekki í hug að trúa á nein vanhugsuð uppátæki þeirra.
En þessi krafa um borgarstjórakosninguna er nú eitt af þeirra vanhugsuðu uppátækjum, og þess vegna er jeg, eins og í fyrra, á móti þessu nýmæli, hvað sem þeir segja — hvað sem hver segir.