24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (1423)
38. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Jósef Björnsson:
Háttv. deild hefir nú átt kost á að hlusta á langa og orðfagra ræðu. En hún flögraði svo víða, að oft kom hún ekki við það mál, sem hjer liggur fyrir til umræðu. Háttv. þm. mintist fyrst á það, að þessi hreyfing, krafa almennings um að fá heimild til þess að kjósa borgarstjórann, væri ekkert annað en útlendur gustur, sem hann sjálfur hefði lagt sinn skerf til að auka. Það má vera að þetta sje rjett, að hreyfingin sje ein grein útlendra strauma. Hitt veit jeg, að háttv. 6. kgk. (G. B.) bljes á sínum tíma aðra pípu en nú í þessu máli og jók gustinn. En þó að eitthvað sje útlent, er þar með ekki sagt, að það sje ilt; það getur þvert á móti verið þarft og gott, og því rangt að hafna því, þótt útlent sje; það er og ekki nema eðlilegt að útlendir straumar berist hingað, og að vjer reynum að fara að dæmum annara þjóða í því, sem við álítum nýtilegt og þarflegt. Slíkt er alls ekki athugavert. — Þótt krafa kjósendanna hjer í bæ um að fá að kjósa borgarstjóra sje sprottin af erlendum rótum, þá er hún hvorki betri nje verri fyrir þá sök. Það hnekkir ekkert rjettmæti kröfunnar, þótt undiraldan væri útlendur gustur, eins og háttv. 6. kgk. (G. B:) gaf í skyn. — Háttv. 6. kgk. (G. B.) sneri sjer því næst að því, hvað þeir menn, sem trúað hefðu á hinn almenna kosningarrjett, hefðu orðið fyrir miklum vonbrigðum. Fulltrúar almennings hefðu svo oft brugðist vonum þeim, sem menn hefðu gjört. sjer um þá, svo oft gengið á bak þeim loforðum, sem þeir hefðu gefið, að nú væri tortryggnin gegn þeim, sem alþýðan kysi til að fara með málefni sín, orðin mjög almenn meðal manna. Af þessu ætti, að því er mjer skildist, þá ályktun að leiða, að Reykvíkingar ættu ekki að vilja kjósa borgarstjóra sinn. Jeg sje nú ekki betur en að þetta atriði komi illa heim við mál það, sem hjer liggur fyrir. Kjósendurnir hjer í höfuðstaðnum hafa þá trú, að málefnum bæjarins verði betur borgið, ef borgarstjórinn er kosinn af öllum atkvæðisbærum borgurum, heldur en ef bæjarstjórnin hefir kosninguna í höndum, og því vilja þeir fá rjett til að kjósa hann beint, en ekki láta þá kosningu ganga gegn um greipar annara. Jeg skal nú ekki leggja dóm á, á hvað miklum rökum þetta er bygt, eða hvort vonir þeirra rætast í þessu efni, þótt jeg ekki geti fundið neitt því til fyrirstöðu. Háttv. 6. kgk. (G. B.) hjelt því fram, að þetta væri öldungis vanhugsað af Reykvíkingum, að þetta væri nokkuð, sem þeir væru að reyna að telja sjálfum sjer trú um. Jeg get ekki sjeð, að ástæða sje til að kalla það vanhugsað. En vel getur verið, að það sje rjett, að þetta lánist ekki ætið betur heldur en það fyrirkomulag, sem nú er. Í því efni komast ágiskanir einar að, og er líklegast, að upp og niður gangi með það, hvað heppilega kosningin tekst. Háttv. 6. kgk. (G. B.) kom fyrst fram með þá mótbáru gegn því að vel tækist, að ef borgararnir ættu sjálfir að kjósa borgarstjórann, þá mundi kosningin verða. metnaðarmál milli hinna pólitísku flokka. En ef hætt er við því, að bæjarbúar missi sjónar á hagsmunum bæjarfjelagsins við borgarstjórakosinguna vegna pólitískra flokkserja, þá get jeg ekki skilið annað, en að flokkserjurnar geti líka komið til greina, þegar bæjarfulltrúarnir eru kosnir, og komast þær þá líka að við borgarstjórakosninguna, þó núverandi ástand haldist óbreytt. Enn fremur sagði hinn háttv. 6. kgk. þm. (G. B.), að sennilegt væri að betri maðurinn yrði að víkja fyrir hinum verri, ef kosningin væri í höndum borgaranna sjálfra. Það má nú oft lengi um það deila, hvor maðurinn sje betri eða verri, ef um tvo er að ræða. Sumir telja þennan betri, aðrir hinn, og af því að að eins annar hlýtur kosninguna, verður vanalega aldrei úr því skorið, hvorir hafi haft rjettara að mæla. Það getur vel verið að mistök yrðu oft, ef borgarnir ættu sjálfir að kjósa, en tæpast er þó hættan minni með því fyrirkomulagi, sem nú er. Mistök geta sjálfsagt líka átt sjer stað hjá bæjarstjórninni, þegar hún velur borgastjórann.
Mjer virtist það vera undiraldan í ræðu háttv. 6. kgk. (G. B.), að best væri að að eins einn rjeði, að einvaldinn ætti að ráða lögum og lofum (Guðm. Björnsson: Það sagði jeg aldrei). Nei, ef til vill sagði háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) það ekki berum orðum, en það var undiraldan í ræðu hans, ella hefði hann ekki lagt svo harðan dóm á gjörðir fjöldans og viljað leggja valdið í hendur fárra. Hann sagði, að kjósendur gætu „slampast“ á, að kjósa nýtan mann til borgarstjóra, en þá væri hætt við, að hann yrði oft að víkja frá skoðunum sínum og breyta á móti betri vitund, til þess að þóknast þeim.
Þetta tel jeg óþarfar getsakir.
Jeg held, að háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) gjöri alt of mikið úr þessu; jeg get ekki sjeð, að gildar ástæður sjeu til þess að ætla, að borgarstjórinn yrði svo miklu ósjálfstæðari, ljelegri, þó að hann væri kosinn af borgurunum í stað bæjarstjórnar. Hann sagði enn fremur, að besta tryggingin fyrir því, að fá góðan skipstjóra, væri að láta hásetana kjósa hann, og dró hann síðan samlíkingu milli hásetanna og bæjarfulltrúanna. Það getur verið að þessi samlíking sje rjett. En jeg er ekki öldungis viss um, að sá skipstjóri yrði bestur, sem hásetar veldu. Að minsta kosti yrðu þá hásetarnir að vera verulega góðir, vitrir og samviskusamir hásetar. Jeg vil nú alls ekki segja, að bæjarfulltrúarnir sjeu slæmir hásetar á bæjarfjelagsskipinu, en hitt þykir mjer uggvænt, að þeir, ef til vill, sjeu ekki altaf sem samhentastir, ef pólitískar flokkadeilur ráða við kosningu þeirra. Jeg get því ekki sjeð, að þessi samlíking sanni mikið.
Þá talaði háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) mikið um þá ábyrgð, sem hvíli á bæjarfulltrúunum. Vel má vera að sú ábyrgð sje þung. En háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) ljet í ljós svo góða trú á Reykvíkingum, að mig furðar ekki, þótt þeir vilji ljetta þessari ábyrgð af bæjarstjórninni og taka hana á sínar eigin herðar. Háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) talaði um, að góðir og nýtir menn mundu eigi gefa kost á sjer við borgarstjórakosningar, ef borgararnir ættu sjálfir að kjósa. Þetta get jeg nú trautt skilið, jeg gæti búist við að meiri hörgull yrði á öllu öðru en á nýtum mönnum til framboðs.
Þá benti háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) enn fremur á það, að þetta frv. væri í ósamræmi við löggjöf vora að öðru leyti, og tók til dæmis, að ekki væri hreppsnefndaroddvitinn kosinn af öllum kjósendum sveitarinnar. Þessu er nú hægt að svara bæði með já-i og nei-i. Sá sem verður oddviti er kosinn af kjósendum inn í hreppsnefnd; hreppsnefndarmenn mega ekki fara út fyrir hreppsnefndina, er þeir velja sjer oddvita. Samræmið væri fult, ef bæjarfulltrúarnir væru skildir til að velja borgarstjórann meðal þeirra, sem í bæjarstjórninni sitja, en eins og allir vita, er því: ekki svo varið. Þá minti háttv. 6. kgk þm. (G. B.) á, að ráðherrann væri ekki kosinn af öllum kjósendum, heldur af Alþingi, eða nokkrum hluta þess. Ekki er þetta allskostar rjett. Ráðherrann er ekki kosinn af neinum, nema konungi. Að vísu fer konungur venjulega eftir óskum þingsins í því efni, en hann hefir þó vald til þess að segja bæði já og nei. Þetta er ekki samanberandi við sveitarstjórnarmálefni það, sem hjer liggur fyrir, kosningu borgarstjóra.
Jeg skal ekki deila við hv. þm. um þroska alþýðunnar, til þess að ráða málefnum sínum; um það heldur hv. 6. kgk. sinni meiningu, og jeg minni. Hann sagði að oft væri talað um alþýðuna, eins og hún væri óskeikul. Það er nú ekkert vafamál, að enginn er óskeikull, hvorki hv. 6. kgk. nje jeg, nje nokkur maður annar. Alþýðan er það vissulega ekki, enda minnist jeg ekki að hafa heyrt nokkurn mann halda því fram. Hjer er heldur ekki að ræða um neina augnabliksdutlunga alþýðunnar, heldur um ósk, sem hefir verið margendurtekin af Reykvíkingum, og má því ætla, að þeir hafi hugsað þetta mál allvandlega. Krafan um, að borgarstjórinn yrði kosinn af öllum borgurum kaupstaðarins, sem hefðu atkvæðisrjett til bæjarstjórnar, hefir verið samþykt með miklum atkvæðafjölda á þingmálafundum 1911, 1912, 1913 og 1914. Enn fremur hefir bæjarstjórnin veitt henni meðmæli 1913. Menn hafa því óneitanlega haft allgott tækifæri til þess að athuga málið og flasa ekki að neinu eða hlaupa eftir vanhugsuðu augnabliksuppþoti. Og krafan virðist vera borin fram með sama styrk ár eftir ár. Jeg get líka bent á ummæli ýmissa merkra Reykvíkinga um þetta mál. Á síðasta þingi sagði t. d. háyfirdómari Kristján Jónsson, sem þá var þm. Borgf.: „Jeg veit vel, að þetta hefir verið glansnúmer á öllum borgarafundum upp á síðkastið“. Þessi orð hlýt jeg að skilja svo, að ræðum. hafi verið kunnugt um að krafan hefði alment fylgi. Bæjarfógetinn í Reykjavík, sem þá var þm. Vestm., sagði á sama þingi : „Hins vegar get jeg ekki neitað því, að það er almennur vilji bæjarbúa, að fá þennan rjett“. Og enn fremur: „Jeg álít, að bærinn eigi rjett á að ráða þessu“. (Alþt.1913 C. bls. 996–997). Hjer liggja þá fyrir ummæli tveggja merkra manna, sem báðir eru mjög vel kunnugir hjer í bænum. Hvorugur þeirra efast um að þetta sje almennur vilji bæjarbóa, og annar þeirra álítur að krafan sje rjettmæt.
Eins og jeg áður hefi tekið fram, var það ýmislegt í ræðu hv. þm., sem mjög lítið snerti það mál, er hjer liggur fyrir. Hann talaði margt um það misrjetti, sem Reykvíkingar væru beittir við kosningar til Alþingis, og kvaðst mundi gjöra það, sem í sínu valdi stæði, til þess að fá leiðrjettingu þess máls. Jeg skal ekkert fara út í þetta atriði að þessu sinni, því það er málinu óviðkomandi með öllu. En í sambandi við þetta viðhafði hann ýms orð, sem skilja mátti á þá leið, að þingmenn ljetu oft fremur leiðast af vilja kjósenda heldur en af sínum eigin skoðunum. Hann tók jafnvel svo djúpt í árinni, að skilja mátti á þá leið. að þeir ættu sjálfir enga skoðun, eða köstuðu henni alveg fyrir borð. Þessu vil jeg harðlega mótmæla. Það er alveg ástæðulaus fullyrðing, að þingmenn hafi litið annað til brunns að bera en skoðanir kjósenda sinna. Ef maður vildi beita hv. þm. sömu brögðum, sem hann í þessu beitti þingmenn yfirleitt, þá mætti alt eins vel segja, að tal hans um misrjetti það, er alþingiskjósendur hjer yrðu fyrir, væri sprottið af löngun til að þóknast þeim og bæta svo úr því, að hann hefir beitt sjer móti vilja þeirra í borgarstjóramálinu, og með því verið hræddur um að hann kynni að brjóta af sjer hylli þeirra.
Vil jeg svo ljúka máli mínu með þeirri ósk, að Reykvíkingar fái vilja sínum framgegnt. Mjer finst þeir hafi fullan rjett til þess, og get ekki sjeð að nein hætta geti af því staðið.