23.07.1914
Neðri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (143)
30. mál, siglingalög
Framsögum. (Einar Arnórsson):
Nefndin hefir orðið á það sátt, að ráða háttv. deild til að samþykkja frv., en leggur þó til um leið, að tveir viðaukar verði gerðir við það.
Í fyrsta lagi, að 1. gr. verði orðuð um á þann hátt, sem nefndin leggur til og grein er gerð fyrir í nefndarálitinu. Læt eg mér nægja að vísa til þess.
Í öðru lagi leggur nefndin til, að þessi lög verði færð inn í texta siglingalaganna, til þess að handhægra verði að nota þau, sérstaklega af því að þetta er umorðun á ákveðnum greinum siglingalaganna.
Loks skal eg geta þess, að nefndin hefir ekki tekið eftir að taka það fram í síðasta viðaukanum, að 12. gr., eins og hún er nú, getur ekki komist inn í texta siglingalaganna, því að það mundi raska greinatölunni. Þetta má lagfæra þegar málið kemur til 3. umr.