27.07.1914
Efri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í B-deild Alþingistíðinda. (1452)
16. mál, beitutekja
Framsm. (Sig. Stefánsson) :
Nefndin, sem hv. deild skipaði til þess að athuga frv. þetta, hefir orðið á eitt mál sátt um það, að rjett sje að aðhyllast þær breytingar á núgildandi beitutekjulögum, sem hv. Nd. hefir samþykt. Í núgildandi lögum eru engin sektarákvæði, og það hafa menn óspart notað sjer. Það ber því nauðsyn til, að ákveðnar sjeu sektir fyrir brot gegn lögunum, ef þau eiga að koma að nokkru haldi, og það hefir tv. Nd. gjört. Að öðru leyti hefir hún ekki breytt lögunum. Hún hefir ákveðið sektir fyrir brot gegn 2. og 3. gr., en henni hefir láðst að gjöra 5. gr. sömu skil. Nefndin vill nú leggja til, að slík sekt liggi einnig við, ef einhver sýnir þau vanskil, að greiða ekki beitutekjugjald áður en hann fer af beitufjöru. Nd. hefir hækkað þetta gjald um helming, og virðist það fullkomlega sanngjarnt, því að það er nú miklu sjaldgæfara en áður, að beitutekjumenn setji verkfæri sín á land, — nú taka þeir venjulega beituna á floti. — Jeg sje svo ekki ástæðu til þess að fara fleirum orðum um málið, og vona jeg að hv. deild samþykki frv. með þeim breytingum, sem nefndin hefir lagt til, að gjörðar verði á því.