27.07.1914
Efri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (1455)

16. mál, beitutekja

Hákon Kristófersson:

Þótt margt sje til bóta í þessu frumv., þá hygg jeg þó, að sum atriði þess þurfi nánari íhugunar við. 1. gr. þess hljóðar svo : „Sjerhver sá, er heimild hefir til fiskiveiða í landhelgi, má setja á land skelfisksbeituverkfæri sín og farvið af skipi sínu, þar sem ekki er friðlýst æðarvarp, selalátur eða árós, sem laxveiði er i. Fyrir þetta skal hann greiða 2 krónur fyrir hvern sólarhring í hvert skifti, sem hann tekur beitu. — Fyrir skemmri tíma greiðist sama gjald“. Þetta gjald er að vísu ekki hátt, en það er ósanngjarnt. Það er ósanngjarnt, að að þurfa að borga nokkuð, þó að maður leggi af sjer segl og möstur í fjöru annars manns. — Enn fremur vil jeg leyfa mjer að spyrja : Er ekki í þessu frumv. í fyrsta sinn ákveðið, hvað netlög eigi að ná langt út? Jeg hefi spurt lögfræðinga um þetta, og þeir hafa sagt mjer, að hjer væri í fyrsta sinn ákveðið, að netlög skyldu vera 60 faðma út frá stórstraumsfjörumáli. Ef þetta er rjett, þarf að athuga það atriði nánar áður en frv. verður afgreitt sem lög. — Annars verð jeg að telja brtt. nefndarinnar til bóta.