28.07.1914
Neðri deild: 23. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (154)

77. mál, notkun bifreiða

Bjarni Jónsson:

Eg stend upp aðeins til að láta í ljós ánægju mína yfir þessu frv. Eg er þakklátur stjórninni fyrir að hafa lagt það fyrir þingið. Frumv. hefir verið í nefnd í efri deild. Tel eg víst, að þar hafi frágangurinn verið vandaður svo, að eigi þurfi að skipa hér nefnd í málið.