06.08.1914
Efri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)

55. mál, vörutollur

Kristinn Daníelsson:

Jeg hefi skrifað undir nefndarálitið af því að jeg vildi láta samþykkja frumvarpið eins og það lá fyrir og get sætt mig við sumt, sem lagt er til í nefndarálitinu. En jeg hefi skrifað undir frv. með fyrirvara af því að jeg áleit rjettara, að samþykkja frv. óbreytt eins og það kom frá Nd. Jeg skal færa rök fyrir þessu máli mínu. Það er svo um þetta mál, eins og öll önnur, að það varðar mest til allra orða að undirstaðan rjett sje fundin. Undirstaðan í vörutollslögunum er sú, að ákveða skuli vörntollinn eftir farmskrám. Tollheimtumennirnir eiga að innheimta vörutollinn eftir því, sem á farmskrá stendur. Því er nauðsynlegt, þegar reynslan sýnir, að þörf er á að breyta lögunum, að það sje gjört á þann hátt, að sem best samræmi sje á milli laganna og farmskrárinnar, til þess að vernda þann, sem vöruna flytur inn, fyrir handahófsskýringum þeirra, sem tollinn eiga að taka. Meiningin var nú sú að fylgja þessari aðalreglu og bæta úr þeim brestum, sem reynst höfðu að vera á lögunum. En mjer virðist að nefndin hjer hafi ekki sem best gætt þessa í brtt. sínum. Jeg verð því að leggja það til, að breytingartillögurnar verði ekki látnar ganga fram.

Það munu fara 3–400 ljáblöð í 100 pundin, svo að ekki verður tollarinn á. hverju ljáblaði nema um ¼ eyris, þótt þau sjeu talin undir 6. lið 1. gr., þar sem 1 kr. á að gjalda af hverjum 50 kg., og getur þetta ekki hleypt verðinu mikið fram. Hv. framsm. (K. E.) játaði að nokkru leyti, að óheppilegt gæti verið að hafa striga og mottur með í upptalningunni. undir b-lið brtt., enda mun fáum blandast hugur um að svo sje, því að einmitt orðið „strigi“ er eitt af þeim orðum, sem svomiklum ruglingi geta valdið og erfiðleikum við innheimtu, með því að svo margt má heimfæra undir það, og hætt við að sumir freistist til að telja fleira með striga en að rjettu lagi er heimild til.

Jeg hefi ekki sjerstaklega móti því, þótt fiskinetjum sje skipað í flokk eins og gjört Er í brtt., nje heldur um kork. Það er hvorttveggja, að lítið flytst af þessu til landsins og á ekki að geta valdið ruglingi. En enga knýjandi ástæðu sje jeg þó til þess.

Undir staflið c er gjört ráð fyrir að á eftir „tilbúin segl“ sje bætt við „segldúkar“. Það er líkt um þessa viðbót að segja eins og um strigann; það getur gefið tilefni til ruglings og óvissu, því að allólíka dúka má . heimfæra undir það nafn, og það því óheppilegt. Þá er nú undir staflið d nefndur þessi fasti vjélaáburður. Mjer er sagt að það nafn muni aldrei standa á farmskrám, og verður það því að vera komið undir mati tollheimtumanns, hvað hann vill heimfæra undir þetta nafn.

Undir staflið e er talið spengur, rær og gaddar. Spengur og rær munu á farmskrám verða taldar undir járnvörur og gaddar undir saum, svo að allerfitt mun verða að greina þetta sundur.

Undir f-liðnum er lagt til, að gufukatlar, gufuvjelar og bifreiðar sje látið falla burt úr 4. málsgrein 1. gr. frv. Það er mikið álitamál, að það sje rjett og sanngjarnt; hjer er um mikla þungavöru að ræða, og verður vörutollurinn á henni ærið hár og tilfinnanlegur, ef vörum þessum á að skipa í 6. lið 1. gr. vörutollslaganna og taka krónu toll af hverjum 50 kg.

Alt þetta, sem jeg hefi nefnt, bætir hvorki frv. nje gjörir vænlegt, að það muni komast fram á þessu þingi, því að flest það, sem hv. Nd. vildi fella úr lögunum, er sett hjer inn aftur.

Að öllu athuguðu sje jeg ekki betur en að rjett sje, að fella allan 1. lið í brtt. nefndarinnar. Aftur á móti get jeg fylgst nokkurn veginn með í breytingum þeim, sem gjörðar eru í 3 síðari töluliðum brtt. nefndarinnar; þó eru þar óþarfar upptalningar. Þannig er það óþarft að vera að taka sjerstaklega fram í 2. lið neta garn og seglgarn, því að netagarn er í frv. beinlínis sett í flokk með þeim vörum, er teljast skuli í 2. lið 1. gr. vörutollslaganna, og seglgarnið leiðir af sjálfu sjer að verður talið undir 6. lið 1. gr. (Steingrímur Jónsson: Það fer betur á því að taka það hjer beint fram).

Í 3. tölulið brtt. er breytingin frá frv. ekki önnur en að tolleiningunni er breytt; hún færð í sama horf sem áður, og get jeg fallist á það. Jeg er ekki heldur mótfallinn brtt. í 4. lið; þó mundi þar nægja að nefna að eins síld alment. Það mun hvort sem er vera torvelt fyrir tollheimtumanninn, að sjá á innfluttri síld, hvort hana eigi að hafa til beitu eða til annars.

Þótt jeg þannig setji mig ekki beinlínis á móti öllum brtt. nefndarinnar, þá teldi jeg þó best að samþykkja frv. óbreytt eins og það kom frá hv. Nd., ef á annað borð er talið til bóta að fara að breyta lögunum nú. Nú er svo komið, að mjer sýnist flestar umbætur hv. Nd. á lögunum vera horfnar við breytingar þær, sem nefndin hjer hefir gjört, og mundi vera eins gott að fella frv. þegar, eins og að láta þær ganga allar fram. Færi svo, að þær yrðu samþyktar hjer í deild, má telja víst, að frv. mundi falla í hv. Nd., þegar það kæmi þannig breytt þangað, því að þar var það samþykt með 19 atkv. (Karl Einarsson: Það sannar ekkert). Hingað til hefir það þótt sanna töluvert um horfur mála, þegar þau hafa svo mikið atkvæðamagn í Nd.

Ef á annað borð á að fara að breyta vörutollslögunum, þá þurfa breytingarnar að ganga í rjetta átt, þá átt, að sem mest samræmi komist á milli laganna og farmskránna, sem á að heimta tollinn inn eftir, svo að sem minstur vafi verði á því fyrir tollheimtumennina, í hvaða flokk þeir eigi að skipa hverri vörutegund ; en því miður er lítt stefnt að því með brtt. þeim, sem hjer liggja fyrir.