11.08.1914
Efri deild: 37. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)
55. mál, vörutollur
Steingrímur Jónsson:
Jeg hefi ekki getað orðið samferða meðnefndarmönnum mínum í þessu máli.
Jeg gjörði grein fyrir því við 2. umr. málsins, að jeg teldi það allvarhugavert að vera að breyta vörutollslögunum svona hvað eftir annað fram og aftur, þannig að gjaldið yrði eitt árið þetta, annað árið hitt á sömu vörutegundinni. Af striga var ákveðið 1912 að borga skyldi 3 kr. í vörutoll af hverjum 50 kg.; 1913 var gjaldið fært niður í 25 aura af 50 kg. og nú 1914 á aftur að hækka það upp í 3 krónur.
Þegar frv. fór hjeðan úr deildinni til hv. Nd., þá var ekki þetta ósamræmi í frv. við það, sem áður hafði verið gjört; það höfðu einar tvær vörutegundir verið undanþegnar vörutolli, sem ekki voru það áður, en ekki nema harla lítið haggað flokkaskiftingunni eins og hún var gjörð í fyrra, og var það til að fullnægja rjettmætum rjettlætiskröfum. Það var ekki á móti því, þótt þetta væri gjört, því að með því var ekki haggað grundvelli laganna. Þessu hefir hv. Nd. að vísu haldið, en hún hefir tekið aftur niðurfærslur, sem veittar voru í fyrra ; þannig hefir hún feit burt úr 2. lið 1. gr. steðja, sleggjur, járnkarla, ljáblöð, striga, mottur, fiskinet, segl dúka, fastan vjelaáburð, spengur, rær og gadda til járnbrautargjörðar. Þetta hafði í fyrra verið fært úr 6. og 3, flokki í 2. flokk, en nú ætlast hv. Nd. til að því sje aftur kipt til baka. Það er altaf varúðarvert að veita undanþágur, en hálfu varúðarverðara er þó að kippa þeim að raunalausu til baka, þegar þær hafa einu sinni verið veittar. Auk þess gjörir þetta geysirugling í innheimtunni. Jeg hefi í ár innheimt lægri vörutollinn á þessum vörutegundum, en á nú á næsta ári að fara að innheimta aftur hærri tollinn. Í fyrra kom lækkunin mönnum á óvart; þá voru það gleðitíðindi, og gleðin drepur engan ; en nú verður þeim hækkun aftur, ef hún kemst á, óvænt óánægjutíðindi.
Brtt. hv. Nd. eru þannig vagnar, að jeg tel ekki rjett að ganga að þeim, og jeg get ekki greitt atkv. með frv., ef þær fá framgang; rjettarbæturnar eru fremur litlar, en ósanngirnin mikil. Jeg skal að vísu játa, að það er sanngjarnt, að vörutollur sje ekki lagður á innflutt hey, því að það er varla flutt hingað til lands, svo nokkru nemi, nema í heyskorti í landinu sjálfu; sömuleiðis er það sjálfsagt og sanngjarnt, að þiggja beitusíld undan vörutolli; en hvorugt þetta er þó svo mikilvægt, að þess vegna sje ástæða til að fara að hringla í lögunum enn á ný og spilla þeim í öðrum greinum.
Hv. frsm. (K. E.) hjelt að ekki mundi verða óánægja hjá kaupmönnum út af hækkun vörutolls á striganum. Jeg man þó svo langt, að megn ágreiningur varð um þetta og stórdeilur í fyrra í hv. Nd. og hætt við að svo geti farið enn. Þá var það drifið gegn, þrátt fyrir mikla mótspyrnu hv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.), að hann var settur í 2. lið 1. gr. Og satt að segja er jeg mjög hræddur um að kaupmenn muni verða sáróánægðir með þá breytingu, sem nú á að gjöra aftur, ef hún kemst á og eigi kæmi mjer á óvart, þótt nýjar deilur verði um strigann á þingi 1915.