02.08.1914
Efri deild: 28. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)

107. mál, gullforði Íslandsbanka

Magnús Pjetursson:

Jeg hefi ekki neitt að athuga við frv. Jeg vildi að eins skjóta því til hæstv. ráðh., með því að ekki er við því að búast, að lögin verði staðfest á morgun, að minsta kosti ekki fyr en annað kvöld, hvort hann ekki vildi hlutast til um í samráði við bankastjórnina, að ráðstafanir verði gjörðar til þess, að dagurinn á morgun verði ekki hættulegur bankanum að því leyti, að hann missi mikið af gollforða sínum.