10.08.1914
Efri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í B-deild Alþingistíðinda. (1620)

84. mál, hornviti á Grímsey á Steingrímsfirði

Steingrímur Jónsson:

Jeg vil að eins taka það fram, að jeg álít, að þingið sje komið inn á hála braut með þessum heimildarlögum, sem nú er í ráði að samþykkja. Jeg mun greiða atkvæði móti þeim öllum. Af tvennu illu kysi jeg fremur, að stjórnin veitti fje það, sem farið er fram á í þessum lögum, upp á væntanlegt samþykki þingsins. Og ef litlar eða engar líkur eru til að þetta heimildarlagafrv. komi til framkvæmda, þótt það verði samþykt, er auðsætt, að hjer er að eins um varhugaverða atkvæðagreiðslu að ræða, en ekki um frv., er getur komið að nokkru gagni.