11.08.1914
Efri deild: 37. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði

Magnús Pjetursson:

Jeg vil geta þess, að þegar jeg heyrði fyrst getið um þessa 20 þúsund króna fjárveitingu, þótti mjer hún of há, og bygðist sú skoðun mín á sömu rökum, sem háttv.5. kgk. (B. Þ.) hefir tilfært. En síðan hefi jeg athugað málið nánara og komist að þeirri niðurstöðu, að hjer tjái ekki að klípa af. Tilgangur þessa frumvarps er auðvitað sá; að unt verði að reka hælið framvegis. En einmitt ræða háttv. 5. kgk. (B. Þ.) sannfærði mig um, að 10 þús. kr., fjárveiting mundi verða of lág. Öll matvæli eru að hækka í verði, ,og þó að meðgjöfin yrði hækkuð, mundi hún aldrei aukast að sama skapi, sem vöruverðið hækkar. Jeg hygg því, að læknir heilsuhælisins mundi ekki nú telja 10 þúsund krónu fjárveitingu nægilega. — Jeg vil enn fremur leyfa mjer að benda háttv. 5. kgk. (B. Þ.) á, að heilsuhælisstjórnin hefir ekki haft ráð yfir Vífilsstaðatúni. fyr en í vor. — Jeg get ekki sjeð að það skifti miklu, hvort stjórninni er heimilað að veita hælinu meiri eða minni fjárstyrk, því að fyr eða síðar hlýtur að reka að því, að landssjóður taki við hælinu, og þá auðvitað um leið við. kaupstaðarskuldum þess.

Í frumvarpinu er heimiluð alt að 20 þús. kr. fjárveiting, en auðvitað hvergi sagt að svo mikið skuli nota. — Ef nú hælinu verður ekki veitt nægilegt fje, þá verður annaðhvort, að því verður að loka og mun öllum þykja það illa farið, eða þá, að þeir menn, sem eru í stjórn hælisins, verða á ný að taka ásig stórábyrgðir fyrir hælið.

Þeir munu þó enn þá standa í 9 þús. kr. ábyrgð fyrir það, og væri hróplegt ranglæti, ef nú ætti að hlaða meira á þá, enda veit jeg ekki, hvort þeir tækju það í mál.