11.08.1914
Efri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (1654)

83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði

Guðmundur Björnsson :

Herra forseti! Jeg bið mig undanþeginn að greiða atkv. í þessu máli af ástæðum þeim, er jeg ber nú fram:

4 undanförnum þingum hefir heilsuhælið aldrei fengið þann styrk, er nægur hafi verið. Þess vegna höfum við stjórnendur hælisins orðið að ganga í ábyrgð fyrir fje, svo að hælið yrði rekið. Ábyrgðarlán þetta er nú 9000 kr. Eins og hv. d. er kunnugt, þá hefir okkur verið borið það hjer á brýn, að við höfum stjórnað hælinu illa og ráðlauslega. Jeg kippi mjer ekki upp við þetta og ætla ekkert að afsaka; veit að allir tímar hafa sinn dóm.

Eins og nú er ástatt, get jeg búist við, að bankinn krefji okkur um borgun. Hjer er því um hagsmuni mína að ræða, og þess vegna tel jeg mjer ekki hæfa að greiða atkv. um málið. Þetta óska jeg að sje bókað.