10.08.1914
Efri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)

82. mál, listaverk Einars Jónssonar

Karl Finnbogason :

Jeg get ekki sjeð að hjer væri í mikið ráðist. Jeg verð að vísu að viðurkenna, að jeg er ekki svo kunnugur verkum Einars Jónssonar sem skyldi, en jeg veit, að hjer er að ræða um listaverk, sem þeir menn, er vit hafa á, telja mikils verð. 5 eða 6 þeirra eru stór, og mörg smá. Einar getur nú ekki lengur fengið að hafa þau í því húsnæði, sem hann hefir komið þeim fyrir í um hríð, og hefir hann því gripið til þess úrræðis, að síma til þingsins og bjóða þau ókeypis, ef þingið vildi leggja fram fje, til þess að flytja þau heim og geyma sæmilega. Mjer finst óráðlegt að slá hendi móti slíku boði, þótt það kunni að kosta 3–4 þús. kr. strax að taka því, og auðvitað meira síðar. Hv. 3. kgk. (Stgr. J.) vildi bera brigður á, að verkin væru þess verð að flytjast heim. Um smekk má auðvitað lengi deila. Og mjög er erfitt að meta gildi listaverka, svo vel sje. Jeg veit ekki, hvernig hv. 3. kgk. (Stgr. J.) ætlar að fá vissu fyrir því, hvort verkin sjeu listaverk eða ekki. En auðvitað hlyti sú rannsókn að kosta eitthvað. Ef til vill vildi hv. þm. senda mann til Hafnar til þess að rannsaka þau, en kostnaðurinn af þeirri sendiför mundi að líkindum slaga hátt upp í flutningskostnaðinn. Sá kostnaður yrði aldrei tilfinnanlegur, en hitt er viðsjárvert og yrði sjálfsagt af mörgum talið ósæmilegt, ef slíku boði væri hafnað. Þess ber líka að gæta, að þetta gæti orðið vísir til listasafns hjer á landi, en einmitt slíku safni verðum við sem fyrst að reyna að koma okkur upp, ef við viljum teljast þjóð með þjóðum — menningarþjóð. Og hjer er ekki að ræða um ótakmarkaða heimild fyrir stjórnina; henni á að eins að heimilast að leggja fram það fje, sem þarf til að flytja þau heim og koma þeim fyrir einhversstaðar, þar sem þau liggi ekki undir skemdum. Jeg get því ekki skilið annað en að hv. d. snúist vel við þessu máli, að minsta kosti ætti hún að gjöra það.