10.08.1914
Efri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)
82. mál, listaverk Einars Jónssonar
Steingrímur Jónsson :
Jeg held að það væri ekki ráðlegt að setja á stofn listasafn á þann hátt, sem hv. þm. Seyðf. (K. F.) var að tala um. Ef við rjeðumst í slíkt, yrðum við auðvitað að hafa þá aðferð, að kaupa verk þeirra listamanna, sem eitthvert heimsgengi hefðu hlotið. Danir sendu ekki eftir listaverkum Thorvaldsens að fyrra bragði; fyrst hafði hann orðið að afla sjer heimsfrægðar. Gengi hans byrjaði fyrst, þegar Englendingurinn keypti Jason af honum; þá opnaðist honum heimurinn. Eins og jeg áður hefi tekið fram, er jeg óviss um að Einari Jónssyni væri neinn greiði gjörður með því, að Alþingi tæki þessu boði hans. Hitt álít jeg sjálfsagt að styrkja hann svo í lífsbaráttunni, að hann geti haldið áfram listastarfi sínu. Það á hann skilið vegna þeirra hæfileika, sem hann hefir sýnt, og vegna þess að hann er góður drengur.