24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)
15. mál, sveitarstjórnarlög
Framsögum. (Kristinn Daníelsson):
Eins og hv. deild getur sjeð á nefndarálitinu og viðaukatillögum nefndarinnar, þá hefir málið vaxið allmikið í höndum hennar. Ástæðan til þess er sú, að við þóttumst ekki geta komist hjá að taka til greina fleiri breytingar á sveitarstjórnarlögunum en farið var fram á í hinu upphaflega frv. Nefndin hefir orðið sammála um, að fallast á efni frv., sem gjörir þá breytingu á 66. gr. sv.stj.l. að atkv. oddvita skuli ávalt gilda jafnt og atkv. annara sýslunefndarmanna, en hingað til hefir sú grein verið skilin svo, að ef tala greiddra atkv. stendur á jöfnu, og jafnmargir greiða atkv. með sem móti, þá ráði þeir, sem oddviti fylgir. En nú þykir það rjett og sanngjarnt, að oddviti hafi ekki frekara atkv. en aðrir, svo að sú tillaga, sem um er að ræða, sje talin fallin með jöfnum atkv. Okkur finst þessi breyting í alla staði sanngjörn og viljum ráða hv. deild til að samþykkja hana. . Annað atriði, sem nefndin hefir gjört breytingu á, er 36. og 37. gr. sveitarstjórnarlaganna. Á síðustu þingum hefir komið fram frv. sama efnis og sú breyting, sem hjer er farið fram á að verði gjörð, og fjekk þá allgóðar undirtektir. En hversu sem þessu máli reiðir af nú, þá getur ekki liðið á löngu áður en þessu verður að breyta. Ástæðan til þess er sú, að atvinnuvegirnir eru altaf að breytast á ýmsan hátt. Þegar sveitarstjórnarlögin voru samin, var reynt að taka tillit til alls og ná í alla gjaldstofna. Í 36. gr. er t. d. verið að elta háseta, sem fara af einum firði á annan til að leita sjer atvinnu. En nú er ekki hægt að leggja á heilar mótorbátaútgjörðir, sem koma alla leið vestan af Ísafirði og setjast að í Sandgerðisvík og öðrum góðum veiðistöðum til að fiska þar um vertíðina. Á þær er ekki hægt að leggja eyrisvirði, af því að þær falla undir á- kvæði laganna um 4 mánaða dvöl. Útlendingar koma hingað oft á vertíðinni til að kaupa lifur og bræða hana, en í þá er ekki hægt að ná, vegna þess að þeir dvelja hjer ekki nema 2 mánuði. Á suma staði koma kaupmenn til þess að reka þar verslun um kauptíðina, en eigi er heldur hægt að leggja á þá, vegna þess að þeir dvelja svo skamman tíma. Jeg vona, að hv. deild sjái því að það er sanngjarnt að lögunum verði breytt þannig, að slíkur atvinnurekstur, sem hjer hefir verið talinn, geti komið til greina þegar útsvar er lagt á.
1. brtt. okkar — einn nefndarmaður hefir þar sjerstöðu og hefir hann áskilið sjer rjett til að gjöra grein fyrir henni — fer fram á, að í stað 4 mánaða í 36. gr. komi 3 mánuðir. Ástæðan til þess er sú, að menn eru oft ekki nema 3 mánuði við atvinnurekstur á sama stað, en þó getur verið eins mikil ástæða til þess að leggja á þá þar eins og hina, sem dvelja 4 mánuði. Þá hefir nefndin bætt inn í ákvæði um það, hvernig taka skuli tillit til þess ef útsvar er lagt á mann annarsstaðar en þar, sem hann á heima. Skal þá draga frá útsvari hans heima fyrir tiltölulega við þann tíma, sem hann dvaldist á hinum staðnum, þó ekki meira en hann galt þar. Þá höfum við enn fremur lagt til, að leggja megi aukaútsvar á verslun eða kaupskap, þilbátaútgjörð og aðrar atvinnugreinar, sjeu þær sjerstaklega arðsamar, þótt þær sjeu eigi reknar nema 8 vikur á þeim stað, þar sem útsvarið er lagt á. Þessar atvinnugreinar eru hjer sunnanlands oft ekki reknar nema yfir vertíðina, en oft með miklum ágóða, og er því sanngjarnt að útsvar sje lagt á þær, einkum þegar þær eru sveitarmönnum til baga, svo sem mótorbátaútgjörðirnar. Í 37. gr. höfum við lagt til að breytt verði þessu gamla ákvæði um það, er stundað er bátfiski við fjörð eða flóa. Viljum við að ákvæði þeirrar greinar, um að eigi megi leggja útsvar á mann úr öðrum sveitarfjelögum við sama fjörð eða flóa, sje breytt á þann hátt, að í staðinn fyrir „sama fjörð eða flóa“ komi „sama sýslufjelagi“. Finst okkur að sanngirni mæli með því, þar eð hreppar í sama sýslufjelagi hafa margar sameiginlegar byrðar að bera, en það þurfa hreppar eigi að hafa, þótt þeir sjeu við sama fjörð eða flóa, eins og t. d. við Fagaflóa, þar sem eru mörg sýslufjelög. Það mun hafa verið alltítt, að lagt hefir verið á sjómenn hundraðsgjald af afla, en við gátum ekki álitið að það væri rjett, og því höfum við bætt inn ákvæði um að eigi megi leggja á slíkt hundraðsgjald, heldur verði að leggja útsvarið á eftir efnum og ástæðum.
Loks hefir nefndinni borist tillaga frá háttv. þingm. Vestmannaeyinga um það að breytt verði 55. og 56. gr. sveitarstj.laganna á þann hátt, að presturinn í Vestmannaeyjum verði ekki lengur lögboðinn í sýslunefndinni, heldur skuli allir sýslunefndarmenn þar vera kjörnir, nema sýslumaðurinn. Nefndin getur fallist á þetta, en þó hefir þótt rjett að undanskilja þann mann, sem nú gegnir prestsembætti í Eyjunum, svo sem venja er til, þegar slíkar breytingar eru gjörðar.
Vil jeg svo ekki fjölyrða frekara um málið að sinni, en tek ef til vill síðar til máls, ef þá verður ástæða til.