24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)

15. mál, sveitarstjórnarlög

Umboðsm. ráðh. (Klemens Jónsson) :

Jeg hefi ekkert verulegt að athuga við aðalfrv. á þgskj. 31. Það hefir jafnan verið skilið svo, og sjálfsagt með rjettu, að atkvæði sýslunefndaroddvita skæri úr, ef atkvæði stæðu jöfn á sýslufundi. Í sjálfu sjer er ekki ástæða til að halda þessu fyrirmæli, enda er það ekki í samræmi við bæjarstjórnarlöggjöf vora, því í tvennum lögum 8. okt. 1883 um bæjarstj. á Akureyri og Ísafirði er svo ákveðið, að atkvæðafjöldi skuli jafnan ráða. Þegar þessi bæjarstjórnarlög voru sett, var þó verksvið bæjarstjórna og sýslunefnda svo svipað, að ástæðulaust hefði mátt virðast, að hafa ekki ákvæðin um starfsemi þeirra í fullu samræmi. En nú hefir vald sýslunefnda aukist mjög síðan, og er því ekki að kynja, þótt margir kunni því illa, að sýslumaðurinn sje að lögum tvígildur á við hina sýslunefndarmennina. Við þetta atriði er því ekkert að athuga.

En þegar jeg sá þetta frv., datt mjer strax í hug, að menn mundu reyna að hnýta fleiri brtt, aftan í það, enda hefir sú orðið raunin á. Á síðustu þingum hafa hvað eftir annað komið fram óskir um breytingu á sveitarstjórnarlögunum í þá átt, að sveitarstjórnunum yrði gjört hægra fyrir um að ná gjöldum af utansveitarmönnum, sem um lengri eða skemri tíma ársins rækju atvinnu í hreppnum. Hingað til hefur eigi mátt jafna aukaútsvari á neinn, sem eigi hefir dvalið í hreppnum til atvinnu að minsta kosti í 4 mánuði, en nú er farið fram á, að færa það tímatakmark niður, ýmist í 3 mánuði eða 8 vikur. Ef nú svo kynni til að vilja, að utansveitarmaður ræki einhvers staðar arðsama atvinnu, þótt eigi væri nema 6 vikur eða jafnvel 4 vikur af árinu, þá er jeg sannfærður um að krafa mundi koma fram um að tímatakmarkið yrði fært niður í 6 vikur eða 4 vikur, og á endanum gæti svo farið, að menn vildu leggja gjöld á hvern mann, sem inn í hreppinn kæmu til þess að reka þar atvinnu, þótt eigi væri nema einn dag, t. d. til þess að halda hrossamarkað eða því um líkt. Mjer finst þessi stefna ískyggileg, og sje jeg ekki að það sje á neinum rökum bygt að heimila hreppsnefndum vald til þess að fara ofan í vasa hvers utansveitarmanns, þótt hann reki atvinnu í hreppnum um stundarsakir, þar sem það þó er víst, að hann hlýtur eigi að siður að gjalda til sins eigin sveitarfjelags. Þess ber einnig að gæta, að hrepparnir geta oft haft hinn mesta hagnað af atvinnurekstri utansveitarmanna. Veita þeir ekki oft mörgum manni innan hreppsins atvinnu? Því hygg jeg að eigi verði neitað. Og á margan hátt annan gjöra þeir hreppsbúum gagn. Það var áðan minst á saltafhendingu í verstöðum. Jeg get nú ekki skilið að hreppsbúum standi neinn skaði af henni, þeir losna. við það ómak að sækja saltið langar leiðir, og einhverjir þeirra hafa að líkindum atvinnu við afhendinguna. Jeg get ekki sjeð, að nein sanngirni mæli með að vera að hrúga á menn álögum, þegar svo stendur á. Það er ekki heldur rjett að komið hafi almennar óskir um þessa lagabreytingu. Kvartanirnar hafa aðallega komið úr 3–4 hreppum, sem hafa þótst verða sjerstaklega hart úti.

Það getur verið að ýmislegt mæli með því að færa tímatakmarkið eitthvað niður, t. a. m. niður í 3 mánuði, en að færa það niður í 8 vikur er áreiðanlega altof langt farið. Jeg er hræddur um, ef farið er að hreyfa við tímatakmarkinn, þá verði endirinn sá, að öll takmörk verði afnumin.

Við 2. og 3. gr. á þgskj. 153 hefi jeg ekkert að athuga. Það er fyllilega rjett og sanngjarnt, að enginn sje lögboðinn sýslunefndarmaður í Vestmannaeyjum, fremur en í öðrum sýslum landsins.

Loks vil jeg minnast á eitt atriði, sem þó ekki skiftir miklu máli. Í fyrri málsgrein 1. gr. á þgskj. 153 er minst á fátækratíund, sem eina af tekjugreinum sveitarfjelaganna. Þetta er eðlilegt, þar sem fátækratíundin er enn þá greidd samkvæmt gildandi lögum. En svo sem kunnugt er, er nú frv. á ferðinni hjer í þinginu og jafnvel einmitt nú fyrir þessari háttvirtu deild, um afnám fátækratíundar. Það virðist nú dálítið óviðkunnanlegt, ef sama deildin sömu dagana samþykkir lög um afnám fátækratíundar og lög, sem gjörðu beint ráð fyrir fátækratíundinni sem gildandi, tekjustofni. Það væri því sjálfsagt heppilegast, að fresta nokkuð endanlegri samþykking þessa frv., þangað til útsjeð er um afdrif hins.